Fara á efnissvæði
Registration for an event
Personal information

Missing information
Missing information
Email is not valid
Missing information
Missing information
Missing information
Missing information

Choose the one that best describes your job.*

Missing information
Missing information
Error

27 Jun

Endurmenntun: Öryggi og björgun - Reykjavík

Price per person 27.500 ISK
Location Laugardalslaug, Sundlaugarvegur 30, 105 Reykjavík
Time 09:00 - 17:00
Instructor Arnar Fannberg Gunnarsson

Nánar um námskeiðið

Endurmenntun fyrir þau sem áður hafa lokið grunnnámskeiði í Öryggi og björgun fyrir sundlaugaverði, sundkennara og sundþjálfara á sund- og baðstöðum. Dagskrá: Skyndihjálp 9:00-13:30 Björgun og hæfnismat 13:30-17:00 Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa áfram sem laugarverðir á sund- og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að. Markmið endurmenntunarnámskeiðsins er að veita þátttakendum, sem eru með gild skírteini í Öryggi og björgun, tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum Öryggi og björgunar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Hæfnismat samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum fer fram á námskeiðinu en þátttakendur þurfa árlega að standast hæfnismat til að viðhalda réttindum til að starfa sem laugarvörður. Til að fá útgefið skírteini í "Öryggi og björgun: Laugarvörður" þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins: -Umræðum og spurningum. -Verklegum æfingum og tilfellaæfingum. -Standast hæfnismat . Þátttakendur sem standast endurmenntunarnámskeið í Öryggi og björgun fá útgefið skírteinið "Öryggi og björgun: Laugarvörður", sem er gilt í eitt ár frá útgáfudegi. Til að viðhalda réttindum þarf laugarvörður að sækja endurmenntunarnámskeið og standast hæfnismat áður en skírteini rennur út. Um hæfnismatið má lesa hér: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/oryggi-og-bjorgun/haefnismat/ ATH!! Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur. Þátttakendur eru hvött til að hafa með sér orkuríkt nesti og vatnsbrúsa. Tengiliður námskeiðs: Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.