Fara á efnissvæði
Registration for an event
Personal information

Missing information
Missing information
Email is not valid
Missing information
Missing information
Missing information
Missing information
Missing information

07 Jun

Hundavinanámskeið Akureyri

Location Viðjulundur 2, 600 Akureyri
Time 12:00 - 17:00
Instructor Sóley Björk Stefánsdóttir

Nánar um námskeiðið

Hundavinir er eitt vinaverkefna Rauða krossins en þar er hundurinn í aðalhlutverki en það fyrirkomulag er þekkt víða um heim. Hundavinanámskeiðið samanstendur af bóklegum og verklegum hluta og er sérsniðið fyrir verðandi heimsóknarvini með hund. Hundar á aldrinum 2ja til 10 ára geta tekið þátt í verkefninu. Námskeiðið fer fram 7. júní í húsnæði Rauða krossins, Viðjulundi 2, Akureyri.

Fyrsta skref námskeiðsins er grunnmat þar sem lagt er mat á hvern og einn hund. Til þess að geta haldið áfram á námskeiðinu þarf hundurinn að standast matið. Grunnhundamatið fer fram fyrir hádegi sama dag og námskeiðið, 7. júní. Einn hundur er metinn í einu og verður þátttakendum raðað niður á tímasetningar.

Námskeiðið sjálft byrjar svo klukkan 12 á bóklegum hluta námskeiðsins sem tekur um það bil þrjár klukkustundir. Að því loknu er gert hlé á námskeiðinu og þátttakendur sækja hunda sína og halda svo áfram í verklega hlutann. Ef hundurinn er mjög rólegur er ekkert því til fyrirstöðu að hann sitji bóklega hlutann.

Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um verkefnið Heimsóknavinur með hund.
Markmið námskeiðsins er eftirfarandi:
- Að skilja hlutverk eiganda og hunds sem heimsóknavinir
- Að hafa grunnþekkingu á hundum
- Að kunna að lesa merkjamál hunds


Áður en farið er af stað í heimsóknarverkefni þurfa sjálfboðaliðar einnig að sækja námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í heimsóknarvinaverkefnum. Slíkt námskeið tekur um 1.5 klukkustundir.

Allar frekari upplýsingar um námskeiðið og heimsóknavinaverkefni má nálgast í gegnum netfangið soleybs@redcross.is eða í síma 570 4272