Fara á efnissvæði
Default
23 Oct

Endurmenntun: Öryggi og björgun - Lágafellslaug/Íþr. Varmá

Location Vallarhúsið að Varmá, 270 Mosfellsbær
Time 09:00 - 17:00
Instructor Þorsteinn Már Ragnarsson

Nánar um námskeiðið

Endurmenntun fyrir þau sem áður hafa lokið grunnnámskeiði í Öryggi og björgun fyrir sundkennara og sundþjálfara á sund- og baðstöðum.

Lengd námskeiðs er 8 klukkustundir.
Þátttakendur er hvattir til að taka með sér orkuríkt nesti og vatnsbrúsa.

Markmið endurmenntunarnámskeiðsins er að veita þátttakendum, sem eru með gild skírteini í Öryggi og björgun, tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum Öryggi og björgunar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar.

Hæfnismat samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu, allir þátttakendur þurfa að standast það. Um hæfnismatið má lesa hér: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/oryggi-og-bjorgun/haefnismat/

Til þess að fá útgefið skírteini í Öryggi og björgun þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins:
- Umræðum og spurningum.
- Verklegum æfingum og tilfellaæfingum.
- Standast hæfnismatið .

ATH!! Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur.

Staðsetning: Vallarhúsið að Varmá

Tengiliður námskeiðs:

Þórhildur Dana/ dana@mos.is

Og

Ólöf Ásta Karlsdóttir/ Lágafellslaug: 862-9454

Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.