Fara á efnissvæði
Default
02 Nov

Grunngildin í verki: Að bregðast við kynþáttafordómum sem sjálfboðaliðar

Location Online
Time 16:30 - 18:00
Instructor Nína Helgadóttir

Nánar um námskeiðið

Grunngildin í verki: Að bregðast við kynþáttafordómum sem sjálfboðaliðar Rauða krossins
Norrænt vefnámskeið fyrir sjálfboðaliða - mánudaginn 2.11.2026, kl. 16.30 (að ísl. tíma).

Kæri sjálfboðaliði Rauða krossins!
Við bjóðum þig velkomin/n/ð á þetta fyrsta samnorræna vefnámskeið eða málþing fyrir sjálfboðaliða, hvort sem þú tekur þegar þátt í verkefnum Rauða krossins og/eða hefur einfaldlega áhuga á að læra meira um kynþáttafordóma og hvernig hægt er að sporna gegn þeim sem sjálfboðaliði. Efni málþingsins er mikilvægt fyrir alla sjálfboðaliða Rauða krossins þar sem kynþáttafordómar og spurningar um inngildingu verða æ meira áberandi í starfi okkar í sífellt fjölbreyttara samfélagi.

Tilgangur málþingsins er að:
• Heyra um hvers vegna Rauði krossinn vinnur gegn kynþáttafordómum
• Fá innblástur frá mismunandi sjálfboðastarfi norrænu landsfélaganna gegn kynþáttafordómum
• Fá hagnýt verkfæri til aðgerða gegn kynþáttafordómum í sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins
• Upplifa tengsl við stærra samfélag sjálfboðaliða Rauða krossins á Norðurlöndunum

Vefmálþingið verður haldið mánudaginn 2.11.2026, kl. 16:30-18:00 að íslenskum tíma. Það verður haldið á Teams og tungumál málþingsins er enska.

Vinsamlega skráðu hér fyrir neðan á "Skráning" fyrir miðvikudaginn 28.október.
Þú færð þá tölvupóst með skráningarhlekk á námskeiðsvef Finnska Rauða krossins, Oma Punainen Risti. Athugið að þar þarf fyrst að velja skráningartungumál efst í hægra horninu! Athugið einnig að finnska síðan sýnir tímasetningu málþingsins á finnskum tíma. Allir skráðir þátttakendur munu fá sendan Teams-hlekk nokkrum dögum fyrir málþingið.

Málþingið er skipulagt af Samstarfsneti norrænu Rauða kross félaganna um inngildingu:
• Danski Rauði krossinn: Anne L. Jørgensen, Mads T. Vestergaard (verkefnisstjóri)
• Finnski Rauði krossinn: Maria Pikkarainen
• Norski Rauði krossinn: Naghmeh Gorgin
• Rauði krossinn á Íslandi: Nína Helgadóttir
• Sænski Rauði krossinn: Keenan Allen