Fara á efnissvæði
Default
07 Oct

Grunnhundamat

Location Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Time 15:00 - 22:00
Instructor Þórdís Björg Björgvinsdóttir

Nánar um námskeiðið

Til að undirbúa þig og hundinn þinn eins vel og mögulegt er fyrir sjálfboðaliðastarf hundavina, þá þurfið þið fyrst að fara í grunnhundamat. Matið er gert af reyndum sjálfboðaliða í verkefninu sem metur hvort þú og hundurinn þinn séuð fær um að taka þátt í heimsóknarvinaverkefninu með hund. Vert er að taka fram að þetta verkefni hentar ekki öllum hundum og möguleiki er á því að hundurinn standist ekki matið eða þá að þú fáir endurgjöf þar sem þú og hundurinn gætu þurft að vinna í ákveðnum þáttum áður en hundanámskeiðið hefst. Allt er þetta gert með hagsmuni gestgjafa og sjálfboðaliða að leiðarljósi.

Hundar þurfa að vera orðnir 2 ára gamlir!  Gert er ráð fyrir 10-15 mín fyrir hvert mat. Vinsamlegast komið með heilsufarsbók hundsins á grunnhundamatið og komið með hundinn í stífum taumi (alls ekki í flexy taumi). Í grunnhundamatinu á hundurinn alltaf að vera í taumi eins og er í öllum hundavinaheimsóknum á vegum Rauða krossins.

Endilega skráið ykkur á námskeiðið!

Sé tímasetningin ekki laus þá mun verkefnastjóri hafa samband við ykkur og bjóða ykkur nýjan tíma. Vinsamlegast beinið öllum fyrirspurnum varðandi grunnhundamatið á tölvupóstfangið vinaverkefni@redcross.is eða hringið í síma 792-6869.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!