Fara á efnissvæði
Default
15 May
to
16 May

Grunnnámskeið Öryggi og björgun hluti 2: Sundlaugin í Búðardal

Price 0 kr.
Location Miðbraut 8b, 370 Búðardal, 370 Búðardalur
Time 09:00 - 17:00

Nánar um námskeiðið

Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluti 2 er ætlað þeim sem ætla sér að starfa sem laugarverðir, sundkennara eða sundþjálfarar á sund- og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Lengd námskeiðsins er 12-14 klukkustundir alls.

Fyrri dagur = Einungis nýliðar, bókleg skyndihjálp í 8 klukkustundir

Seinni dagur = Einungis þau í endurmenntun fyrir hádegi í bóklegum hluta, eftir hádegi blandast allir saman í verklega hlutanum í laug + hæfnismati.

ATH. Að þátttakendur sem ætla að starfa sem Laugarverðir þurfa að skrá þátttöku sérstaklega á Grunnnámskeið Hluti 1 - Laugarvörðinn, sjá næstu námskeið hér: https://www.raudikrossinn.is/um-okkur/namskeid-og-vidburdir/?courseType=waterSafety

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð sem laugarvörður. Einnig mun það veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni sem þeir munu síðan geta nýtt sér til að:
- Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðst við neyðartilfellum í og við vatn.
- Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.

ATH!! Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur.

Til þess að fá útgefið skírteini í Öryggi og björgun þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins:
-Umræðum og spurningum.
-Verklegum æfingum og tilfellaæfingum.
-Standast hæfnismat(eingöngu þeir sem starfa í vatni og þurfa að standast hæfnismat samkvæmt reglugerð)

Þátttakendur sem standast Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluta 1 og 2 fá útgefið skírteinið "Laugarvörður" sem er gilt í eitt ár frá útgáfudegi.

Þátttakendur sem standast Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluta 2 og taka ekki hæfnismat fá útgefið skírteinið "Öryggi og björgun", gildistími fer eftir starfi og menntun þátttakanda.

Til að viðhalda réttindum þarf að sækja endurmenntunarnámskeið áður en skírteini rennur út. 30 daga frestur er gefinn sitthvoru megin við daginn sem skírteinið rennur út.

Ef réttindi eru útrunnin lengur en í 6 mánuði þarf aftur að sitja grunnnámskeið í Öryggi og björgun til að öðlast réttindi á ný.

Þátttakendur eru hvött til að taka með sér orkuríkt nesti og vatnsbrúsa.

Tengiliður: Einar Björn Þorgrímsson
866-0562/ einarbjorn@dalir.is

Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.