Fara á efnissvæði
a168d000000XlegAAC
07 Apr

Skyndihjálp 4 klst - Reykjavík

Price 13.600 kr.
Location Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Time 17:00 - 21:00

Nánar um námskeiðið

Á námskeiðinu læra þátttakendur grundvallaratriði í skyndihjálp, grunnendurlífgun og sálrænum stuðningi. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráðir áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

ATH! 4 klst skyndihjálparnámskeið dugir ekki sem endurmenntun fyrir atvinnubílstjóra.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.