Fara á efnissvæði
hringlogo1
17 May

Skyndihjálp 6 klst: Endurmenntun atvinnubílstjóra - Reykjavík

Price 17.500 ISK
Location Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Time 10:00 - 16:00
Instructor Guðjón Einar Guðmundsson

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra og er samkvæmt námskrá Samgöngustofu. Markmið námskeiðisins er að veita þátttakendum tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum í að: - Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum. - Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum. Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti. Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.