Skyndihjálp fyrir sjálfboðaliða 12 klst - ÍSLENSKA / ICELANDIC

Námskeið

31 May
to
01 Jun
Location Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
Time 11:00 - 17:00
Instructor Bjarni Þorbergsson

Námskeiðið er ætlað sjalfboðaliðum sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp og endurlífgun. Þátttakendur öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita einföldum aðferðum í skyndihjálp.

Signup
course-image
ATH! Námskeið einungis ætlað sjálfboðaliðum Rauða krossins.

Námskeiðið er ætlað öllum, 14 ára eða eldri, sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp og endurlífgun. Þátttakendur öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita einföldum aðferðum í skyndihjálp á öruggan hátt.

Námskeiðið er 12 klukkustundir, 6 klst hvorn dag. Það er metið til eininga í flestum framhaldsskólum, til aukinna ökuréttinda og víðar.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á namskeid@redcross.is.