Location
Hafnarbraut 7, 620 Dalvík
Time
17:00 - 18:30
Instructor
Sóley Björk Stefánsdóttir
Námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í heimsóknarvinaverkefnum Rauða krossins. Námskeiðið fer fram í húsnæði Rauða krossins, Hafnarbraut 7 á Dalvík.
Hlutverk heimsóknarvina er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og stuðning.
Staðsetning og tímasetning heimsókna er samkomulagsatriði milli sjálfboðaliða og gestgjafa en miðað er við fjórar heimsóknir á mánuði, klukkustund í senn.
Misjafnt er hvað felst í heimsóknum en það getur t.d. verið spjall, spil, upplestur, kíkja á rúntinn eða fara á kaffihús, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Hlutverk heimsóknavina er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.
Engin skuldbinding felst í því að koma á námskeiðið en það er góð leið til að kynna sér verkefnið. Áhersla er lögð á að velja verkefni við hæfi hvers og eins sjálfboðaliða.