Location
Pósthólf 154, 232 Reykjanesbær
Time
18:00 - 20:00
Instructor
Helga Rakel Þorgilsdóttir
Kæru leiðbeinendur á Suðurnesjum, okkur langar að bjóða ykkur á vinnustofu í Bjargvættum
Vinnustofan fyrir leiðbeinendur eru í tengslum við verkefnið Bjargvættir - viðnámsþróttur en Rauði krossinn mun bjóða upp á ókeypis námskeið í Bjargvættir fyrir ungmenni, á
Suðrnesjum, á aldrinum 12-16 ára árið 2026.
Markmiðið er að efla ungmenni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og veita
skyndihjálp. Jafnframt verður fyrirkomulag námskeiðanna hannað með það að markmiði
að styrkja viðnámsþrótt þeirra til framtíðar, sem stuðlar að sterkari og öruggari samfélagi
á öllum Suðurnesjum.
Við ætlum okkur að ná til amk 30% allra ungmenna á þessum aldri með því að bjóða upp á 38 námskeið.
Vinnustofan hefur það markmið að leiðbeinendur á Suðurnesjum fái tækifæri til að tileinka sér nýja námsefnið og kenna námskeiðin fyrir RK deildina á Suðurnesjum.
Auk þess mun vinnustofan gefa ykkur 2 einingar til endurmenntunar.