Fara á efnissvæði
a168d000000XlelAAC
11 Nov

Sálrænn stuðningur - Akureyri

Price 0 kr.
Location Viðjulundur 2, 600 Akureyri
Time 18:00 - 21:00
Instructor Sóley Björk Stefánsdóttir

Nánar um námskeiðið

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir sálrænnar fyrstu hjálpar til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sú færni getur hjálpað þér að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.

Á námskeiðinu eru þátttakendur kynntir fyrir undirstöðuatriðum í sálrænni fyrstu hjálp. Það hentar öllu starfsfólki og sjálfboðliðum sem sinna sálfélagslegum stuðningi sem og öðrum sem veita fólki stuðning.

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist: þekkingu um sálræna fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki, frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan, skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“, færni í að veita sálræna fyrstu hjálp, skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum og mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra.

Námskeiðið fer fram á efri hæð Rauða krossins við Viðjulund miðvikudaginn 11. nóvember frá 18.00 til 21.00. Boðið verður upp á súpu og brauð.