Staðsetning
Dynskógar 4, 700 Egilsstaðir
Tími
16:00 - 17:30
Leiðbeinandi
Sóley Björk Stefánsdóttir
Á námskeiðinu er lögð áhersla á upphaf hreyfingarinnar og grunngildi Rauða krossins, markmið og stefnu félagsins og störf sjálfboðaliða.
Námskeiðið er ætlað sjálfboðaliðum og starfsfólki, en er einnig opið öllum sem vilja kynnast starfi og gildum Rauða krossins. Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í upphaf og þróun alþjóðlegu Rauða kross hreyfingarinnar, grunngildi hennar og mannúðarhlutverk. Einnig er fjallað um markmið og stefnu Rauða krossins á Íslandi og hvernig félagið velur og forgangsraðar verkefnum sínum út frá þörfum samfélagsins. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk sjálfboðaliða og mikilvægi þeirra í starfinu, auk þess sem þátttakendur eru hvattir til að tengja efnið við eigin reynslu og framtíðarþátttöku í starfi félagsins.