Fara á efnissvæði
Stefnur og lög

Reglur og lög Rauða krossins á Íslandi

Traust og ábyrgð eru grundvöllur alls mannúðarstarfs og starf Rauða krossins á Íslandi byggir á trausti -samfélagsins og einstaklinganna sem við þjónustum, bakhjarlanna og samstarfsaðilanna, og innan félags- svo hægt sé að sinna þeim fjölmörgu mikilvægu verkefnum sem koma upp. 

Til hliðar er að finna helstu stefnur, lög og regluverk er gilda um starfsemi Rauða krossins á Íslandi. Rauði krossinn fylgir einnig regluverkum alþjóðasambandsins og heitum sem lesa má hér. 

Við erum fyrst og fremst ábyrg gagnvart:

  • Samfélögunum og einstaklingunum sem við þjónustum
  • Sjálfboðaliðum og starfsfólki
  • Bakhjörlum og Mannvinum

Gæðaviðmið í mannúðarstarfi

Fólk og samfélög í neyð

  1. Geta sótt rétt sinn og tekið þátt í ákvörðunum
  2. Fá tímanlega og skilvirka aðstoð
  3. Eru betur undirbúin fyrir krísur og búa yfir meiri seiglu
  4. Fá þjónustu sem veldur hvorki fólki né umhverfi skaða
  5. Geta með öruggum hætti sent inn ábendingar og kvartanir
  6. Hafa aðgang að samhæfðri og samþættri þjónustu
  7. Fá þjónustu sem byggir á stöðugum umbótum í samræmi við endurgjöf
  8. Eiga í samskiptum við starfsfólk og sjálfboðaliða sem endurspegla virðingu og hæfni
  9. Mega gera ráð fyrir að aðföngum sé stýrt með ábyrgum og siðlegum hætti

 

CHS Booklet Template IS Flower2