Laugarverðir þurfa árlega að standast hæfnismat til að hafa réttindi til að starfa sem laugarvörður.
Öryggi og björgun
Námskeiðin Öryggi og björgun er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.
Markmið námskeiðanna er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð þegar það kemur að öryggi í vatni.
Námskeiðstegundir
Grunnnámskeið - Hluti 1 Laugarvörður
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa sem laugarverðir á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að, námskeiðið er fyrri hluti grunnnámskeiðs.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð sem laugarvörður. Einnig mun það veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni sem þeir munu síðan geta nýtt sér til að:
Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum í og við vatn.
Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.
Forkröfur
Til þess að fá að sitja grunnnámskeið í Öryggi og björgun þarf að:
Hafa náð 18 ára aldri.
Vera syndur/synd.
Hafa kynnt sér lesefni námskeiðsins.
Lengd námskeiðs
6 klukkustundir
Kennsluefni
Laugarvörður - efni frá Rauða krossinum.
Öryggishandbók sund - og baðstaða
Námskeiðið er bæði kennt rafrænt gegnum Teams og á staðnum sé þess óskað.
Mælst er með því að þátttakendur taki þátt í umræðum og hafi myndavél kveikta meðan á námskeiði stendur sé námskeiðið kennt rafrænt.
Grunnnámskeið - Hluti 2 Skyndihjálp, björgun og hæfnismat
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni sem þeir munu síðan geta nýtt sér til að:
Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðst við neyðartilfellum í og við vatn.
Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.
Hæfnispróf samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu og ætlað þeim þátttakendum sem þurfa að standast hæfnispróf árlega samkvæmt reglugerð.
Forkröfur
Til þess að fá að sitja grunnnámskeið í Öryggi og björgun þarf að:
Hafa náð 18 ára aldri.
Vera syndur/synd.
Hafa kynnt sér lesefni námskeiðsins.
Lengd námskeiðs
12 - 14 klukkustundir
Skyndihjálp og björgun 10-12 klukkustundir.
Hæfnispróf: 2 klukkustundir.
Kennsluefni
Öryggishandbók sund - og baðstaða
Endurmenntun
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa áfram á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.
Markmið endurmenntunarnámskeiðsins er að veita þátttakendum, sem eru með gild skírteini í Öryggi og björgun, tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum Öryggi og björgunar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar.
Hæfnispróf samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu en þátttakendur þurfa að árlega að standast hæfnispróf til að hafa réttindi til að starfa sem laugarvörður.
Forkröfur
Til þess að fá að sitja endurmenntunarnámskeið í Öryggi og björgun þarf að:
Vera með gilt skírteini í Öryggi og björgun.
Hafa náð 18 ára aldri.
Vera syndur/synd.
Hafa kynnt sér lesefni námskeiðsins.
Lengd námskeiðs
8 klukkustundir.
Skyndihjálp og björgun: 6 klukkustundir.
Hæfnispróf: 2 klukkustundir.
Kennsluefni
Laugarvörðurinn - efni frá Rauða krossinum.
Öryggishandbók sund - og baðstaða
Næstu námskeið
Hæfnismat
Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu árlega standast hæfnismat skv. III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu standast hæfnismat skv. III. viðauka fyrrnefndrar reglugerðar á tveggja ára fresti. Sundkennurum, sem lokið hafa íþróttafræðinámi á háskólastigi eða jafngildu eldra prófi og hafa leyfisbréf til kennslu, skv. lögum nr. 87/2008, um menntun, ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, standast hæfnismat skv. III. viðauka á þriggja ára fresti.
Leiðbeinendur með gild réttindi til að leiðbeina í skyndihjálp og björgun skulu annast hæfnispróf skv. III. viðauka. Slík réttindi öðlast þeir sem hafa lokið leiðbeinendanámskeiði í skyndihjálp og tveggja daga leiðbeinendanámskeiði í björgun. Til að viðhalda réttindum sínum skal leiðbeinandi sækja endurmenntun fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp og björgun á þriggja ára fresti. Heimilt er að leiðbeinendur leiti til íþróttakennara til að framkvæma prófatriði 1-3 í hæfnisprófi skv. III. viðauka.
Að loknu námskeiði í sérhæfðri skyndihjálp fyrir sund- og baðstaði og hæfnisprófum skv. III. viðauka, skulu leiðbeinendur senda lista yfir þátttakendur sem hafa lokið sérhæfðu skyndihjálparnámskeiði fyrir sund- og baðstaði og þá er hafa staðist hæfnispróf samkvæmt III. viðauka, til viðkomandi heilbrigðiseftirlitssvæðis og til viðkomandi rekstraraðila sundstaðar þar sem starfsmaðurinn starfar.
Listi frá leiðbeinendum um þá sem staðist hafa hæfnispróf skv. III. viðauka og starfa á sund- og baðstað, skal vera starfsmönnum heilbrigðiseftirlits aðgengilegur við eftirlit.
Hæfnispróf - prófatriði
- Þolsund, 600 m á innan við 21 mínútu (frjáls aðferð).
- Hraðsund, 25 m á 30 sek.
- Kafsund, 15 m.
- Björgunarsund í síðbuxum og síðerma peysu, 25 m með jafningja.
- Björgun á óvirkum jafningja með björgunarsveig eða öðrum flotáhöldum, úr miðri laug að hliðarbakka, lyfta viðkomandi upp á bakka með aðstoð eins laugarvarðar.
- Sækja 3 hluti í dýpsta hluta laugar (á allt að 3,5 m dýpi). Synda 5 m á yfirborði, kafa niður eftir hlut, hlutnum skilað á bakka, hvíld milli kafana 10 sekúndur.
- Hoppa eða stinga sér út í laug, synda 25 m, kafa eftir jafningja í dýpsta hluta laugar, færa jafningja upp á yfirborðið og synda 25 m til baka, lyfta jafningja upp á bakka með aðstoð eins laugarvarðar.
Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu ljúka árlegu námskeiði í skyndihjálp og björgun fyrir sund- og baðstaði og standast alla verklega þætti þess námskeiðs. Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu ljúka þessu námskeiði á tveggja ára fresti. (Tíðni sbr. ákvæði reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, með breytingum í reglugerðum nr. 773/2012 og 205/2014. Sjá einnig töflu fyrir ofan, Hæfnispróf starfsmanna sem sinna laugargæslu, sundkennara, sundþjálfara og leiðbeinenda.)
Fara yfir öryggisatriði og útbúnað (öryggis- og sjúkrabúnað) á viðkomandi sund- og baðstað.
Standist viðkomandi ekki einstaka þætti hæfnisprófsins skal hann endurtaka þá hluta innan mánaðar.
Æskileg stærð laugar fyrir hæfnismat:
Æskileg laug er sundlaug sem er 25 m x 10,5 m og 1,5 m að dýpt. Hitastig 27-28°C.
Skírteini
Að loknu námskeiði er hægt að nálgast skírteini á mínum síðum.
Mikilvægt er að þátttakendur sem starfa sem laugarverðir á sund og baðstöðum sendi skírteini á sinn yfirmann/vinnustað.
Gildistími skírteina
Gildistími skírteina er mismunandi eftir starfinu sem viðkomandi sinnir.
Til að viðhalda réttindum þurfa þátttakendur að sækja endurmenntunarnámskeið og standast hæfnismat áður en skírteini rennur út. 30 daga frestur er gefinn sitthvoru megin við daginn sem skírteinið rennur út.
Ef réttindi eru útrunnin lengur en í 6 mánuði þarf að sitja grunnnámskeið í Öryggi og björgun til að öðlast réttindi á ný ásamt að standast hæfnismat samkvæmt reglugerð.
Fari starfsmaður í fæðingarorlof eða veikindaleyfi þarf viðkomandi ekki að sitja grunnnámskeið, en þarf að sitja endurmenntunar námskeið.
Verðskrá fyrir sund- og baðstaði
Verðskrá fyrir heilt námskeið haldið af Rauða krossinum.
Fjöldi þátttakanda:
*Gert er ráð fyrir 12 þátttakendum á Endurmenntunarnámskeiðum. Hægt er að bæta við allt að 4 aukaþátttakendum á námskeiðin, að hámarki 16 þátttakendum. Þetta er þó háð samþykki leiðbeinanda fyrirfram. Auka 16.500 kr. gjald bætist við fyrir hvern þátttakanda umfram 12.
Dæmi: Endurmenntun fyrir 15 þátttakendur: 183.000 kr. + 16.500 kr. x 3 aukaþátttakendur = 232.500 kr.
Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í fjölda þátttakenda á leiðbeinenda. Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.
Athugið að leiðbeinanda er heimilt að vísa óskráðum einstaklingum frá ef hámarksfjölda er náð.
Greiðsluskilmálar eru eftirfarandi:
Reikningur er sendur á kaupanda námskeiðs eftir að námskeið hefur verið haldið. Reikningar eru sendir eftir hvert námskeið eða mánaðarlega, eftir því hvað á við hverju sinni.
Hætti kaupandi við námskeið af einhverjum orsökum skal afpöntun berast eigi síðar en með þriggja virka daga fyrirvara. Berist afbókun með minni fyrirvara skal námskeiðiskaupandi greiða 50% af námskeiðsgjaldi. Berist afpöntun með styttri fyrirvara en sólarhring ber námskeiðskaupanda að greiða námskeið að fullu.
Allur aðkeyptur kostnaður við námskeiðahald eins og gisting, leiga á sundlaug og sal fyrir kennslu er fyrir utan verðskrá og greiðist af námskeiðiskaupanda.
Akstursgjald leiðbeinanda:
Ef leiðbeinandi þarf að ferðast er greitt kílómetragjald fyrir ekna vegalengd, samkvæmt gildandi reglum um akstursgjald ríkisstarfsmanna. Frá 1. október 2025 er kílómetragjaldið 144 kr.
Staðarnámskeið
Verðskrá fyrir einstaka þátttakendur á námskeið haldin af Rauða krossinum.
*Endurupptaka hæfnismats: Á við um einstakling sem þarf að endurtaka hæfnismat eða hluta þess og fær að mæta bara í hæfnismat á staðarnámskeiði í Öryggi og björgun.
Frekari upplýsingar og dagsetningar námskeiða er að finna á heimasíðu Rauða krossins HÉR.
Hætti kaupandi við bókun af einhverjum orsökum skal afpöntun berast eigi síðar en með þriggja virka daga fyrirvara.
Rauði krossinn getur aflýst námskeiði með a.m.k. tveggja daga fyrirvara vegna dræmrar þátttöku.
Útgefið af Rauða krossinum á Íslandi og tekur gildi frá 1. janúar 2026, með fyrirvara um breytingar.
Öryggi í vatni - fræðsla
Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Átakið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi (SFSÍ) og er því beint að öllu landinu.
Börn á aldrinum 1-4 ára eru líklegust til að lenda í vandræðum í sundi eða drukkna. Þar á eftir koma börn á aldrinum 5-9 ára. Ástæðurnar eru nokkrar eins og börn eru ósynd eða með takmarkaða sundfærni og það getur tekið aðeins 30 sekúndur fyrir barn að drukkna og gerist það hljóðlega.
Sumarið er sá árstími sem flestir njóta þess að fara í sund og baða sig í vatni. Svo allir geti notið þeirra stunda sem best, ætti ávallt að hafa öryggismál í hávegum og að foreldrar og forráðafólk taki eftirlitsskylduna sína alvarlega og missi aldrei sjónar á barni í sundi.
Fimm ráð um öryggi barna í sundi
Hafðu augun ekki af barninu allan tímann
Foreldri eða forráðamaður ber ábyrgð á barni í vatni. Það þýðir að hann skal fylgjast stöðugt með því og sjá til þess að það noti viðeigandi öryggisbúnað (kúta) og að hann sé settur á barnið áður en farið er ofan í vatnið.
Gefðu barninu að borða og drekka
Passaðu að barnið sé vel nært og hafi fengið að drekka áður en það fer í vatnið. Að leika sér í vatni er orkufrek iðja. Þyrst barn getur misst orkuna hratt og þar með eykst hætta á drukknun.
Viðhaltu sundfærni barnsins yfir sumartímann
Þegar skólasundinu sleppir á vorin er komið að forráðamönnum að halda færninni við.
Tryggjum að allir í fjölskyldunni sem eru synd hafi hæfnina til að bjarga sér úr vandræðum í vatni.
Settu öryggisreglur í kringum vatn og fræddu barnið um öryggi í vatni
Settu einfaldar og skýrar reglur um öryggi í vatni og útskýrðu fyrir barninu. Til dæmis "aldrei fara í vatn án eftirlits."
Lærðu endurlífgun og skyndihjálp
Vertu viðbúin að bregðast við neyðartilfellum í og kringum vatn. Rauði krossinn býður upp á skyndihjálparnámskeið. Skráðu þig hér.
Laugarverðir eru hluti af öryggismenningu sund- og baðstaða
Rauði krossinn, í samstarfi við sundlaugar í landinu, hefur síðan í ársbyrjun 2023 kennt öryggi og björgun í vatni, námskeið sem eru sérstaklega ætlað starfsfólki sund- og baðstaða. Rauði krossinn ber einnig ábyrgð á hæfnismati laugavarða sem þeir þurfa að standast árlega, samkvæmt reglugerð, til að halda réttindum sínum.
Laugarverðir sundlauga sinna eftirliti og eru viðbragðsaðilar, sem þýðir að þeir bregðast við um leið og eitthvað gerist. Frumskylda laugarvarða í starfi er að tryggja öryggi gesta á vaktinni sinni. Laugarverðir sinna þessari frumskyldu sinni með eftirliti og skönnun á sínu svæði, tryggja slysavarnir, hafa þekkingu á lögum, reglugerðum og öryggisreglum. Þeir þurfa líka að vera tilbúnir til að bregðast við neyðartilfellum, taka stjórn á aðstæðum og veita skyndihjálp.
Almenningur er líka hluti af öryggimenningunni á sund – og baðstöðum. Þegar við förum í sund gerum við það alltaf á eigin ábyrgð, sem framlengist ef við erum með börn með okkur. Ábyrgð okkar snýst um að við treystum okkur til að vera í vatni, að dagsformið okkar sé gott, vera vel nærð, vera meðvituð um að vatn, hiti og kuldi geti haft áhrif á undirliggjandi sjúkdóma eða kvilla. Einnig þýðir það að við treystum okkur til að bera ábyrgð á börnum í sundi og að tryggja að þau séu með nauðsynlegan öryggisbúnað eins og kúta.
Með öflugu samstarfi okkar allra í öryggismenningu á sund – og baðstöðum getum við komið í veg fyrir alvarleg atvik eins og drukknun í laugum.
Hafðu samband
Fyrirspurnir um námskeið í öryggi og björgun má senda á bjorgun@redcross.is
Hildur Vattnes Kristjánsdóttir
Teymisstjóri skyndihjálpar
netfang: hildurvk@redcross.is
Sigurlaug Rúnarsdóttir
Verkefnastjóri skyndihjálparnámskeiða
netfang: sigurlaugr@redcross.is
Kamilla Tryggvadóttir
Sala og skipulagning Skyndihjálp
netfang: kamilla@redcross.is