Fara á efnissvæði
slide4
20 Maí

Slys og veikindi barna - Reykjavík

Verð 13.200 ISK
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 17:00 - 21:00
Leiðbeinandi Eyjólfur Karlsson

Nánar um námskeiðið

Námskeið fyrir foreldra og forráðamenn barna, auk annarra sem sinna börnum. Þátttakendur þurfa að vera 14 ára eða eldri. Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum. Námskeiðið gagnast öllum þeim sem umgangast börn, hvort sem er í starfi eða daglegu lífi. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum. Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti. Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.