Fara á efnissvæði

Hvað er Mannvinur?

Mannvinir eru mánaðarlegir styrktaraðilar Rauða krossins á Íslandi.

Mannvinir styðja við verkefni innanlands og alþjóðleg verkefni. Verkefni innanlands eru meðal annars skaðaminnkun Frú Ragnheiðar og Ylju, neyðarvarnir, vinaverkefni, stuðningur við flóttafólk, Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is.

Í alþjóðastarfi styrkja Mannvinir meðal annars starf landsfélaga í þágu bættra lífsskilyrða í sínum ríkjum, viðbrögð við neyð á hamfara- og átakasvæðum, starf í þágu jafnréttis í Sómalíu og Malaví og flóttafólk og farendur.