Vilt þú læra skyndihjálp?
Rauði krossinn býður upp á vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp, sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og starfsmanna fyrirtækja.

Tegundir námskeiða
Námskeiðið er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 12-16 ára sem vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum.
|
Lengd |
4 klukkustundir |
|
Markmið |
Að þátttakendur þekki grundvallarreglur skyndihjálpar og öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og geti brugðist við algengum áverkum og veikindum. |
|
Viðfangsefni |
Grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun, aðskotahlutur í öndunarvegi, blæðing, bruni, beinbrot, höfuðhögg, flog/krampi, bráðaofnæmi og eitrun. |
|
Fræðsluefni |
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn. |
|
Inntökuskilyrði |
Þátttakendur séu 12 ára (eða verði 12 ára á árinu) eða eldri. |
|
Námsmat |
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. |
|
Viðurkenning |
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur rafrænt skyndihjálparskírteini frá Rauða krossinum. |
Verð fyrir einstakling á staðnámskeiði: 11.000 kr.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.
|
Lengd |
4 klukkustundir með hléum |
|
Markmið |
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum. |
|
Viðfangsefni |
Kynning; hvað er skyndihjálp? |
|
Fræðsluefni |
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi. |
|
Inntökuskilyrði |
Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. |
|
Námsmat |
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi. |
|
Viðurkenning |
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. |
Efnisatriði
Fjögur skref skyndihjálpar
- Tryggja öryggi á vettvangi
- Meta ástand slasaðra eða sjúkra
- Sækja hjálp
- Veita skyndihjálp
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð
- Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun
- Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun)
- Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja)
- Aðskotahlutur í öndunarvegi
Skyndihjálp og áverkar
- Innvortis- og útvortis blæðingar
- Bruni og brunasár,
- Áverkar á höfði, hálsi eða baki
Skyndihjálp og bráð veikindi
- Brjóstverkur
- Bráðaofnæmi
- Heilablóðfall
- Flog
- Sykursýki
- Öndunarerfiðleikar
Sálrænn stuðningur
- Streita í neyðartilfellum
- Tilfinningaleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp
- Sálrænn stuðningur
Verð fyrir einstakling á staðnámskeiði: 13.200 kr.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið.
|
Lengd |
12 klukkustundir |
|
Markmið |
Markmið Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka. |
|
Viðfangsefni |
Kynning; hvað er skyndihjálp? |
|
Fræðsluefni |
Bókin „Skyndihjálp og endurlífgun” og kennsluglærur. |
|
Inntökuskilyrði |
Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. |
|
Námsmat |
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi. |
|
Viðurkenning |
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. |
Efnisatriðin eru viðbót fyrir 4 klst. námskeið.
- Eitranir
- Hitaslag / hitaörmögnun og ofkæling
- Lost
- Blóðnasir
- Sár og sáraumbúðir
- Raflost
- Höfðuáverkar
- Tannáverkar
- Skorðun á hyrgg
- Áverkar á brjóstkassa og kvið
- Vöðvakrampar
- Sýklasótt
- Yfirlið
- Spelkun útlima
Verð fyrir einstakling á staðnámskeiði: 24.500 kr.
Námskeiðið er einkum gagnlegt foreldrum, dagforeldrum, starfsfólki dagvistunarstofnana, kennurum og öðrum sem sinna börnum. Námskeiðið er bæði í boði fyrir fyrirtæki/stofnanir og almenning og er einungis haldið af deildum Rauða krossins.
|
Lengd |
4 klukkustundir |
|
Markmið |
Að þátttakendur öðlist færni í að beita skyndihjálp vegna algengra áverka eða veikinda hjá börnum. |
|
Viðfangsefni |
Staðreynir um slys á börnum |
|
Fræðsluefni |
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn. |
|
Inntökuskilyrði |
Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. |
|
Námsmat |
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Hvorki skriflegt né verklegt próf. |
|
Viðurkenning |
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur skírteini frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár. |
Verð fyrir einstakling á staðnámskeiði: 13.200 kr.
Námskeiðið Skyndihjálp 6 klst: Endurmenntun atvinnubílstjóra er ætlað einstaklingum sem starfa sem atvinnubílstjórar og er partur af þriðja hluta í endurmenntun atvinnubílstjóra: Öryggi.
Námskeiðið er byggt á kennsluefni frá Rauða krossinum og er samkvæmt námskrá Samgöngustofu.
Þátttakendur munu fá tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum til í að:
- Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum.
- Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.
Þátttakendur sem standast endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir atvinnubílstjóra fá útgefið eftirfarandi skírteini: Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra og er það gilt í tvö ár frá útgáfudegi.
Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.
Hámarksfjöldi:
15 þátttakendur.
Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í fjölda þátttakenda á leiðbeinenda. Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.
Lengd námskeiðs
6 klukkustundir og 15 mínútur
Samkvæmt námskrá skal námskeiðið vera 7 kennslustundir auk þess sem tekin eru hlé.
Hver kennslustund er 45 mínútur.
Viðfangefni námskeiðsins
- Rauði krossinn og útbreiðsla skyndihjálpar
- Forvarnir og undirbúningur
- Öryggi og aðstæður
- Vettvangsstjórn og samstarf við viðbragðsaðila
- Skoðun og mat
- Virkja viðbragðskeðjuna
- Kynning á sálrænni fyrstu hjálp
- Aðskotahlutur í hálsi
- Endurlífgun
- Bráð veikindi
- Slys og áverkar
Skilyrði fyrir útgáfu skírteinis
Til þess að fá útgefið skírteini í Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins.
Kennsluaðferðir námskeiðs eru fyrirlestrar, umræður og spurningar og sérstök áhersla er á sýnikennsla, verklegar æfingar og tilfellaæfingar.
Námsmarkmið
Við lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu, hæfni og öryggi í skyndihjálp, en það felst í því að þátttakendur:
- Sýni fram á þekkingu og hæfni í forvörnum og undirbúningi sem hluta af umferðaröryggi.
- Sýni fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi á vettvangi, meta aðstæður og framkvæma skoðun og mat.
- Sýni fram á leikni við vettvangstjórnun slysa og í samstarfi við viðbragðsaðila á vettvangi.
- Geta ákveðið hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð.
- Geti borið kennsl á og veitt sálræna fyrstu hjálp vegna áfalla.
- Sýni fram á þekkingu, leikni og hæfni í endurlífgun, með hjartahnoði, öndunarblástrum og notkun á hjartastuðtæki.
- Sýni fram á leikni og hæfni í teymisvinnu í endurlífgun.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna slysa og áverka.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna bráðra veikinda.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna aðskotahlutar í hálsi.
Verð fyrir einstakling á staðnámskeiði: 17.500 kr.
Upplýsingar um Skírteini
Rauði krossinn og Heilbrigðisráðuneytið gefa út í sameiningu skírteini í Skyndihjálp til þeirra sem lokið hafa námskeiði í skyndihjálp á vegum Rauða krossins eða sjálfstætt starfandi leiðbeinenda í skyndihjálp með gild réttindi frá Rauða krossinum.
Skírteini er hægt að nálgast á mínum síðum.
Skyndihjálpar teymið
Fyrirspurnir um námskeið í skyndihjálp má senda á namskeid@redcross.is
