Fara á efnissvæði
slide3
16 Jún.

Bjargvættir: Skyndihjálp fyrir ungmenni - Akureyri

Verð 11.000 ISK
Staðsetning Viðjulundur 2, 600 Akureyri
Tími 12:00 - 16:00
Leiðbeinandi Anna Sigrún Rafnsdóttir

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 12-16 ára sem vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum. Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. ATH!! Ekki er boðið uppá veitingar en þátttakendur eru hvött til að taka með sér nesti. Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.