Fara á efnissvæði
Skráning á viðburð
Persónuupplýsingar

Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Netfang er ekki gilt
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Error

18 Ágú.

Slys og veikindi barna - Reykjavík

Verð á mann 13.200 kr.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 17:00 - 21:00
Leiðbeinandi Andri Steinn Birgisson

Nánar um námskeiðið

Námskeið fyrir foreldra og forráðamenn barna, auk annarra sem sinna börnum. Þátttakendur þurfa að vera 14 ára eða eldri.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum. Námskeiðið gagnast öllum þeim sem umgangast börn, hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.