Fara á efnissvæði
hringlogo1
27 Jún.

Endurmenntun: Öryggi og björgun - Reykjavík

Verð 27.500 ISK
Staðsetning Laugardalslaug, Sundlaugarvegur 30, 105 Reykjavík
Tími 09:00 - 17:00
Leiðbeinandi Arnar Fannberg Gunnarsson

Nánar um námskeiðið

Endurmenntun fyrir þau sem áður hafa lokið grunnnámskeiði í Öryggi og björgun fyrir sundlaugaverði, sundkennara og sundþjálfara á sund- og baðstöðum.

Dagskrá:
Skyndihjálp 9:00-13:30
Björgun og hæfnismat 13:30-17:00

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem ætla sér að starfa áfram sem laugarverðir á sund- og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Markmið endurmenntunarnámskeiðsins er að veita þátttakendum, sem eru með gild skírteini í Öryggi og björgun, tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum Öryggi og björgunar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar.

Hæfnismat samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum fer fram á námskeiðinu en þátttakendur þurfa árlega að standast hæfnismat til að viðhalda réttindum til að starfa sem laugarvörður.

Til að fá útgefið skírteini í "Öryggi og björgun: Laugarvörður" þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins:
-Umræðum og spurningum.
-Verklegum æfingum og tilfellaæfingum.
-Standast hæfnismat .

Þátttakendur sem standast endurmenntunarnámskeið í Öryggi og björgun fá útgefið skírteinið "Öryggi og björgun: Laugarvörður", sem er gilt í eitt ár frá útgáfudegi.

Til að viðhalda réttindum þarf laugarvörður að sækja endurmenntunarnámskeið og standast hæfnismat áður en skírteini rennur út. Um hæfnismatið má lesa hér: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/oryggi-og-bjorgun/haefnismat/

ATH!! Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur.

Þátttakendur eru hvött til að hafa með sér orkuríkt nesti og vatnsbrúsa.

Tengiliður námskeiðs:

Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.