Fara á efnissvæði
hringlogo1
17 Ágú.
til
18 Ágú.

Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Hluti 1 - Rafrænn Laugarvörður

Verð 13.500 kr.
Staðsetning Fjarnámskeið, á Teams
Tími 16:30 - 19:30
Leiðbeinandi Arnar Fannberg Gunnarsson

Nánar um námskeiðið

Laugarvörðurinn fjarnámskeið, rafrænt námskeið fyrir laugaverði á sund- og baðstöðum. Námskeiðið er Hluti 1 af Grunnnámskeiði.

Fyrirtæki og stofnanir geta skráð þátttakendur og fengið reikning sendan. Mikilvægt er að skrá kostnaðarstað og tengilið við skráningu.

Lengd námskeiðs er 6 klukkustundir og skiptist niður á 2 daga þann 18.-19. ágúst, 3 klukkustundir í senn frá 16:30-19:30.

Námskeiðið er kennt rafrænt gegnum Teams, þátttakendur geta því tekið námskeiðið að heiman.

Mælst er með því að þátttakendur taki þátt í umræðum og hafi kveikt á myndavél á meðan á námskeiði stendur.

Þátttakendur eru hvött til að vera með tilbúið nesti og drykk meðan á námskeiði stendur.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Leiðbeinandi: Arnar Fannberg, sími: 781-7810

Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.