Fara á efnissvæði
Default
19 Okt.

Grunnnámskeið Rauða krossins - Akureyri

Staðsetning Viðjulundur 2, 600 Akureyri
Tími 18:00 - 20:00
Leiðbeinandi Sóley Björk Stefánsdóttir

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er ætlað sjálfboðaliðum og starfsfólki, en er einnig opið öllum sem vilja kynnast starfi og gildum Rauða krossins. Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í upphaf og þróun alþjóðlegu Rauða kross hreyfingarinnar, grunngildi hennar og mannúðarhlutverk. Einnig er fjallað um markmið og stefnu Rauða krossins á Íslandi og hvernig félagið velur og forgangsraðar verkefnum sínum út frá þörfum samfélagsins. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk sjálfboðaliða og mikilvægi þeirra í starfinu, auk þess sem þátttakendur eru hvattir til að tengja efnið við eigin reynslu og framtíðarþátttöku í starfi félagsins.
Á námskeiðinu verður boðið upp á súpu og brauð.
}