Fara á efnissvæði
img_7643
12 Maí

Inngangur að neyðarvörnum 12. maí 2026- fjarnámskeið

Staðsetning Microsoft Teams, 103 Reykjavík
Tími 17:30 - 19:00
Leiðbeinandi Jakob Smári Magnússon

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið ,,Inngangur að neyðarvörnum" verður haldið þriðjudaginn 12. maí gegnum fjarfundarforritið Microsoft Teams. Námskeiðið er ætlað fyrir þau sem vilja gerast sjálfboðliðar Rauða krossins í opnun fjöldahjálparstöðva. Námskeiðið hefst klukkan 17:30 og lýkur klukkan 19:00. Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að vefmyndavél og míkrafón. Ókeypis er á námskeiðið. Helstu efnistök: -Kynning á neyðarvörnum Rauða krossins og helstu verkefnum -Opnun fjöldahjálparstöðvar -Samantekt og umræður Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Jakob Smára Magnússon, netfang: jakobs@redcross.is