Fara á efnissvæði
a168d000000XlelAAC
09 Nóv.

Sálræn fyrsta hjálp - Ólafsfirði

Verð 13.200 kr.
Staðsetning Strandgata 23, 625 Ólafsfjörður
Tími 17:00 - 20:00
Leiðbeinandi Sóley Björk Stefánsdóttir

Nánar um námskeiðið

Á námskeiðinu eru þátttakendur kynntir fyrir undirstöðuatriðum í sálrænni fyrstu hjálp. Það hentar öllum sem sinna sálfélagslegum stuðningi sem og öðrum sem veita fólki stuðning.

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist:
· þekkingu á sálrænni fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki
· frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan
· skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“
· færni í að veita sálræna fyrstu hjálp
· skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum
· veri meðvitað um mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra

Námskeiðið fer fram á neðri hæð húss Slysavarnafélagsins (Sandhóli) mánudaginn 9. nóvember frá 17.00 til 20.00. Boðið verður upp á súpu og brauð.