Fara á efnissvæði
a168d000000XlelAAC
27 Okt.

Sjálfsvígshætta: mat og samtal

Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 17:00 - 19:00

Nánar um námskeiðið

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig hægt er að taka samtal um sjálfsvígshugsanir og meta sjálfsvígshættu. Áhersla verður lögð á opið samtal og stigvaxandi nálgun sem getur auðveldað fólki að segja frá hugsunum sínum, líðan og aðstæðum. Farið verður yfir gagnlegar spurningar við áhættumat, meðal annars um eðli og alvarleika sjálfsvígshugsana, fyrri tilraunir og mögulegan undirbúning. Einnig verður fjallað um áhættuþætti, verndandi þætti og hvernig bregðast megi við þegar sjálfsvígshætta er til staðar. Þátttakendur fá tækifæri til að æfa samtal og áhættumat með dæmum.