Hvort sem þjálfunin er hluti af öryggiskröfum eða einfaldlega til að auka öryggi, eru í boði sveigjanlegar lausnir sem henta þínum vinnustað. Sendu inn beiðni og við höfum samband sem fyrst til að finna hentugan tíma og staðfesta bókun. Fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir: skyndihjalp@redcross.is
Sértilboð fyrir vinnustaði
Vinnustaðir sem kaupa hjartastuðtæki fá 15% afslátt af skyndihjálparnámskeiðunum Endurlífgun 2 klst og Skyndihjálp 4 klst.
Gildir fyrir pantanir til 2. júní 2026 en námskeiðin geta verið skipulögð lengra fram í tímann.
Verð eru eftirfarandi:
Hjartastuðtæki 237.000 kr. án VSK
Grunnendurlífgun 2 klst: 94.690 kr. með afslætti
Skyndihjálp 4 klst: 119.680 kr. með afslætti
Almennir skilmálar eru eftirfarandi:
Fjöldi þátttakanda:
Hámarksfjöldi er 15 þátttakendur á námskeiði
Á eftirfarandi námskeiðum er heimilt að hafa allt að 20 þátttakendur
Skyndihjálp 4 klst., Endurlífgun 2 klst., Slys og veikindi barna/ungbarna og Bjargvættir
Greitt er aukagjald fyrir þátttakendur umfram 15
Hámark 5 aukaþátttakendur á hvert námskeið
Dæmi: Skyndihjálp 4 klst fyrir 17 þátttakendur: 140.800 kr. + 10.000 kr. x 2 aukaþátttakendur = 160.800 kr.
Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í hámarksfjölda þátttakenda á leiðbeinanda. Einnig er hlutverk og ábyrgð leiðbeinanda gagnvart þátttakendum að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.
Athugið að leiðbeinanda er heimilt að vísa óskráðum einstaklingum frá ef hámarksfjölda er náð.
Greiðsluskilmálar eru eftirfarandi:
Reikningur er sendur á kaupanda námskeiðs eftir að námskeið hefur verið haldið. Reikningar eru sendir eftir hvert námskeið eða mánaðarlega, eftir því hvað á við hverju sinni.
Hætti kaupandi við námskeið af einhverjum orsökum skal afpöntun berast eigi síðar en með þriggja virka daga fyrirvara.
Berist afbókun með minni fyrirvara skal námskeiðiskaupandi greiða 50% af námskeiðsgjaldi.
Berist afpöntun með styttri fyrirvara en sólarhring ber námskeiðskaupanda að greiða námskeið að fullu.
Akstursgjald leiðbeinanda:
Ef leiðbeinandi þarf að ferðast er greitt kílómetragjald fyrir ekna vegalengd, samkvæmt gildandi reglum um akstursgjald ríkisstarfsmanna. Frá 1. október 2025 er kílómetragjaldið 144 kr.