Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildurbolladottir 2

Brynhildur Bolladóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi. Staðan var auglýst nýverið og var Brynhildur valin úr hópi 77 umsækjenda.

Brynhildur útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 2014. Hún þekkir vel til Rauða krossins enda starfaði hún sem upplýsingafulltrúi félagsins á árunum 2016 til 2022. Frá 2023 og fram á þetta ár var hún sérfræðingur hjá landskjörstjórn. Þar kom hún m.a. að gerð reglugerða og leiðbeininga fyrir kosningar og sá um upplýsingavefinn kosning.is. Einnig hafði hún umsjón með stafvæðingu ferla við kosningar eins og rafrænni kjörskrá og söfnun rafrænna meðmæla.

„Ég er mjög spennt að koma aftur til Rauða krossins í nýju hlutverki,“ segir Brynhildur. „Maður sleppir aldrei alveg tökunum á jafn kraftmiklu og flottu félagi og Rauði krossinn er. Ég hlakka til að aðstoða nýjan og öflugan framkvæmdastjóra í þeim fjölmörgu verkefnum sem framundan eru.“

Sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra mun Brynhildur gegna lykilhlutverki í stjórnsýslu Rauða krossins og vinna náið með framkvæmdastjóra, öðrum stjórnendum félagsins og stjórn þess.

„Við erum afar lánsöm að fá Brynhildi aftur til liðs við okkur,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Brynhildur er drífandi og útsjónarsöm og býr bæði yfir sérfræðiþekkingu sem Rauði krossinn þarfnast og dýrmætri innsýn í starf félagsins.“

Rauði krossinn býður Brynhildi velkomna til starfa á nýjan leik.