
Hlíf Una Bárudóttir, teiknari, á heimili sínu i miðbæ Reykjavíkur. Mynd: Rauði krossinn/Davíð
„Fuglar eru í mínum huga tákn fyrir frið og frelsi,“ segir teiknarinn Hlíf Una Bárudóttir sem teiknar myndirnar er prýða jólamerkimiða Rauða krossins í ár. „Fuglar fara um allt og fara langt. Þannig að þeir tákna líka tengslin milli staða og svæða í heiminum.“
Þrír fuglar urðu fyrir valinu á miðana: spói, steindepill og óðinshani. „Mér finnst þeir allir fallegir og spóinn er líka mjög fyndinn.“ Allir fljúga þeir um óvenju langan veg til að verpa á Íslandi. Sem dæmi flýgur steindepillinn hingað á hverju vori frá Suður-Ameríku og spóinn alla leið frá vesturströnd Afríku. Þar, líkt og um allan heim, aðstoðar Rauði krossinn fólk í kjölfar hamfara, átaka og annarra áfalla.
Hlíf Una hefur myndlýst fjölda bóka ætlaðar bæði börnum og fullorðnum. Þar má nefna ljóðabókina Flagsól og barnabókina Í huganum heim. Hlíf hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem myndhöfundur þeirrar bókar.
Hún hefur einnig unnið ýmis verkefni fyrir fjölmiðla og stofnanir, veggmyndir fyrir söfn og veitingastaði ásamt því að sinna stundakennslu við Myndlistaskólann í Reykjavík.

Mynd: Rauði krossinn/Davíð
Hugarflug Hlífar
Rauði krossinn falaðist eftir samstarfi við Hlíf Unu á vormánuðum og þá þegar fór hugur hennar á mikið flug. Hún fór fljótlega að gera skissur út frá þeirri hugmynd að tengja með einhverjum hætti saman jólin, Ísland og Rauða krossinn. Í þessu sköpunarferli komu farfuglar allt í einu upp í hugann. „Um leið og það gerðist hugsaði ég: Já, þetta er rétta hugmyndin. Þarna er eitthvað.“
Farfuglar leggja líf sitt að veði í hvert sinn sem þeir halda af stað á milli heimshluta að vori og hausti og eru ríkuleg viðbót við vistkerfi hvers staðar fyrir sig. Lífsbarátta þeirra getur verið býsna hörð en þegar þeim líður vel og eru öruggir syngja þeir okkur sína fegurstu söngva. „Fuglar fara út um allt og þessir tilteknu fuglar fara langt. Og þeir eru litlir. Eins og Ísland er lítið,“ segir Hlíf Una ennfremur um valið á fuglunum þremur.
„Ég var nú enginn sérfræðingur í farfuglum,“ bætir hún svo við. „En ég er grúskari.“ Og listakonan lagði á sig töluverða rannsóknarvinnu áður en hafist var handa við teikninguna, enda telur hún það vera sjarma hvers verkefnis. Hún las sér vel til um fuglana og fór í haustlitaferð með líffræðingi til að finna rétta tóninn í teikningarnar.

Mynd: Rauði krossinn/Davíð
Rauði krossinn er að störfum um allan heim og aðstoðar þau sem mest þurfa á hjálp að halda. Rauði krossinn á Íslandi sinnir fjölbreyttum mannúðarverkefnum innanlands en einnig í fjarlægum löndum, m.a. í Afríku og Suður-Ameríku. Þess vegna kviknaði tengingin við farfuglana. „Við förum út um allt,“ segir Hlíf Una og á þar við Rauða krossinn á Íslandi sem hún var ekki lengi að samsama sig við á meðan vinnunni við merkimiðana stóð. „Við erum ekkert að láta okkar smæð stoppa okkur, ekki frekar en farfuglarnir.“
Tvöföld gleði
Jólahefti Rauða krossins, sem inniheldur hina fagurlega myndskreyttu jólamerkimiða, er dreift inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Einnig verður það fáanlegt í Bónus-verslunum víða um land.
„Það felst tvöföld gleði í því að nota jólamerkimiða Rauða krossins,“ segir Hlíf Una. „Þú ert að gefa einhverjum gjöf, sem vonandi vekur gleði og er gefin af góðum hug. En síðan ert þú vonandi líka að styðja Rauða krossinn, með því að greiða valkröfu í heimabankanum, og rétta þannig einhverjum öðrum hjálparhönd. Í því felst einnig heilmikil fegurð.“
Rauði krossinn hvetur landsmenn til að nota merkimiðana á jólapakkana sína og vera þannig – og ávallt – með mannúðinni í liði.
Jólahefti Rauða krossins með merkimiðunum var dreift til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Að auki verður hægt að nálgast það í Bónus-verslunum á eftirtöldum stöðum:
- Akranes
- Borgarnes
- Stykkishólmur
- Ísafjörður
- Akureyri
- Egilsstaðir
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Hveragerði
- Reykjanesbær
Einnig er heftið að finna í eftirtöldum Bónus-verslunum á höfuðborgarsvæðinu:
- Hafnarfjörður
- Holtagarðar
- Grafarvogur
- Smáratorg
- Skeifan



