
Abdelbaset og Ali með viðurkenningarskjöl sem þeir fengu eftir að hafa afhent Rauða krossinum söfnunarféð.
Tveir bræður á Hvammstanga vildu ólmir láta gott af sér leiða og ákváðu að safna dósum og flöskum í bænum og skila til endurvinnslu gegn gjaldi. Með þessum hætti söfnuðu þeir 20 þúsund krónum.
Bræðurnir Abdelbaset og Ali Alhaji eru þrettán og tólf ára gamlir og ganga í Grunnskólann á Hvammstanga. Faðir þeirra, Mohamad Alhaji, er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum svo þeir eiga ekki langt að sækja áhugann á mannúðarmálum. Mohamad var heiðraður fyrir sjálfboðastörf sín á aðalfundi Rauða krossins í vor.
Bræðrunum þótti mjög skemmtilegt að safna fyrir Rauða krossinn en dósunum söfnuðu þeir meðal annars við vegi og í nágrenninu á Hvammstanga. Verkefnið var því bæði hreinsunar- og mannúðarstarf.
Svo skemmtilegt þótti Abdelbaset og Ali að safna fyrir Rauða krossinn að þeir eru núna að hugsa um að stofna lítinn hóp með vinum sínum, selja popp og safna meira fyrir félagið.
Rauði krossinn þakkar bræðrunum kærlega fyrir að vera með mannúðinni í liði og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.

Bræðurnir sýsla með dósir og flöskur sem þeir höfðu tínt og safnað í og við Hvammstanga.



