
Hilmar og Einar Örn fengu viðurkenningarskjöl og sundpoka að launum fyrir söfnunina. Mynd: Rauði krossinn/Sunna
Tveir vinir úr Kópavogi mættu galvaskir til Rauða krossins nýverið og afhentu með stolti fé sem þeir höfðu safnað. Þeir Einar Örn Gíslason og Hilmar Scheving Samúelsson eru á níunda ári og eru í 4. bekk í Lindaskóla. Þeir segjast bestu vinir en bæta því svo við að allir í bekknum þeirra séu bestu vinir.
„Við vorum lengi að safna en svo ákvað pabbi að tvöfalda upphæðina sem við söfnuðum,“ segir Einar Örn. Hin formlega söfnun fór þannig fram að þeir gengu í hús í hverfinu sínu og spurðu hvort fólk ætti dósir fyrir Rauða krossinn.
„Það voru margir sem vildu gefa okkur dósir en það voru líka margir sem voru nýbúnir að fara og skila sínum dósum,“ segir Hilmar. „Þannig að kannski vorum við ekki á besta tíma að safna,“ segir Einar Örn hugsi en er fljótur að skipta um skoðun þegar talið berst að upphæðinni sem safnaðist: 38.400 krónur. „Við söfnuðum dósum fyrir 19.200 en svo bætti pabbi við,“ endurtekur Einar Örn.
Strákarnir vilja að söfnunarféð verði nýtt til að hjálpa börnum í útlöndum. Þeir segjast vita að mörg börn eigi erfitt og að Rauði krossinn sé að reyna að hjálpa þeim.
Þeir eru ekki vissir um hvar þeir heyrðu fyrst af starfi Rauða krossins og hvers vegna þeir ákváðu að safna fyrir félagið. „Þetta var bara góð hugmynd sem við fengum,“ segir Einar Örn léttur í bragði. „Og þetta var bara mjög gaman.“
Rauði krossinn þakkar Einari og Hilmari kærlega fyrir að vera með mannúðinni í liði og skorar á fleiri börn að feta í þeirra fótspor.

Hilmar og Einar gengu í hús í hverfinu sínu í Kópavogi og söfnuðu dósum og flöskum sem þeir fóru svo með til endurvinnslu og uppskáru skilagjaldið.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Daria ráðin deildarstjóri Rauða krossins í Múlasýslu

Seldu eigin hönnun til styrktar Rauða krossinum

Minningarorð um Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins