Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Hjartahlýr hópur fólks heiðraður

Adalfundur Rki 2026 4951 (1)

Sjálfboðaliðarnir sem voru heiðraðir í ár tóku við viðurkenningu á aðalfundi Rauða krossins 9. maí.

Sjö sjálfboðaliðar Rauða krossins úr ýmsum deildum voru heiðraðir á aðalfundi félagsins nýverið. Þau hafa sinnt neyðarvörnum, skaðaminnkun, fataverkefnum og fleiri verkefnum með mannúðina að leiðarljósi.

Adalfundur Rki 2026 4937
Mohamad: Öflugur í neyðarvörnum

Mohamad Abed Alhaji fluttist til Hvammstanga frá Sýrlandi árið 2019 og gerðist sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum þremur árum seinna og hefur verið það síðan.

Hann hefur verið öflugur í neyðarvörnum félagsins og auk þess sinnt fataverkefninu í Húnavatnssýsludeild. „Það er óhætt að segja að Mohamad hafi haft mikil áhrif á sitt nærsamfélag á stuttum tíma,“ segir m.a. í rökstuðningi stjórnar. Sjálfur segir hann áhuga sinn á sjálfboðastörfum hafa kviknað þegar hann var í Líbanon árið 2019.

Mohamad hefur boðið fram krafta sína í neyðaraðstæðum, bæði við slys og erfiðar veðuraðstæður, þar sem hann lagði sitt af mörkum til að hjálpa fólki.

Adalfundur Rki 2026 4885
Helgi: Sjálfboðaliði í 36 ár

Helgi Ívarsson hóf sjálfboðastarf fyrir Rauða krossinn árið 1984 og starfaði samfleytt til ársins 2020 eða í 36 ár. Meðal þeirra verkefna sem standa upp úr að hans sögn er innleiðing fatasöfnunar í Hafnarfirði, þátttaka í almannavörnum og neyðarnefnd, uppbygging ungmennastarfs, móttaka flóttafólks frá Kosovo og stofnun athvarfs fyrir fólk með geðraskanir.

„Sjálfboðastarf hans spannar á fjórða áratug og einkennist af frumkvæði, festu og sterkri samfélagslegri ábyrgð,“ segir í rökstuðningi stjórnar.

Adalfundur Rki 2026 4910
Málfríður: Samstaðan mikils virði

Málfríður hefur gegnt sjálfboðastörfum hjá Rauða krossinum frá 2007, fyrst hjá Vesturlandsdeild og síðar hjá Múlasýsludeild. Hún var í stjórnum beggja deilda og færði út kvíarnar í Múlasýslu þar sem hún sinnti neyðarvörnum, fataverkefni og vinaverkefnum.

Að sögn Málfríðar stendur upp úr sú ánægja sem hún upplifir í samskiptum við aðra sjálfboðaliða og alla þá sem hún á í samskiptum við í sínum verkefnum. Samstaðan sem myndast í viðbragði er henni mikils virði.

Adalfundur Rki 2026 4894
Þröstur: Vílar aldrei fyrir sér að taka vakt í Frúnni

Þröstur Ólafsson hóf störf sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum árið 1995 í viðbragðshóp. Hans fyrsta verkefni var að bregðast við snjóflóðunum sem féllu í Súðavík árið 1995. Það var kveikjan að áhuga hans á almannavörnum, sálrænum stuðningi og þátttöku í sjálfboðastarfi. Hann snéri síðan að Frú Ragnheiði á höfuðborgarsvæðinu.

Þröstur vílar aldrei fyrir sér að taka vakt í Frú Ragnheiði. Hann hugsar af alúð um Frúna, eins og bíllinn er kallaður, og keyrir á vöktum í ýmsum veðrum og vindum. Þröstur segir að sjálfboðastarfið gefi sér mikið og hann ljúki hverri vakt glaðari en er hún hófst.

Adalfundur Rki 2026 4904
Þórður: Dáist að öllum sjálfboðaliðunum

Þórður Guðni Pálsson gerðist sjálfboðaliði hjá höfuðborgardeild Rauða krossins í Frú Ragnheiði árið 2015 og gegndi þar hlutverki bílstjóra. Að sögn Þórðar eru það þó ekki bílarnir sem standa upp úr heldur samstarfsfólkið sem hefur verið ótrúlega ötult og úrræðagott við að takast á við hin fjölmörgu og ólíku verkefni sem fylgja skjólstæðingum Frú Ragnheiðar.

Nýverið lauk Þórður störfum í Frú Ragnheiði en hann dáist að öllum sjálfboðaliðunum sem hann hefur verið svo lánsamur að vera með í áhöfn Frú Ragnheiðar.

Adalfundur Rki 2026 4917
Halldór: Holuhraunsgosið stendur upp úr

Halldór hóf sitt sjálfboðastarf í stjórn hjá Húsavíkurdeild árið 2012 sem síðan varð Þingeyjarsýsludeild, einmitt fyrir tilstilli Halldórs sem vann ötullega að stækkun starfssvæðis í Þingeyjarsýslu. Samhliða því vann hann í fataverkefni deildarinnar og beitti sér fyrir stofnun Rauðakrossbúðar á staðnum og sinnti neyðarvörnum á svæðinu. Síðar varð hann ritari stjórnar Rauða krossins á Íslandi.

Að hans sögn standa fyrstu árin í Holuhraunsgosinu upp úr enda geysimikil aðkoma neyðarvarna á svæðinu.

Adalfundur Rki 2026 4931
Valdís: Samstarf með góðu fólki efst í huga

Valdís G. Gunnlaugsdóttir hefur sinnt sjálfboðastörfum fyrir Eyjafjarðardeild Rauða krossins frá 2001 og er enn að. Hún hefur sinnt stjórnar- og nefndarstörfum, komið að starfi athvarfs fyrir geðfatlaða og síðar fataverkefninu.

„Hún er öflug deildarmanneskja og mætir á viðburði deildarinnar sem efla andann og samvinnu,“ segir í rökstuðningi stjórnar.

Hjá Valdísi er það samstarfið með góðu fólki, mannúðin og allt það vinnuframlag sem fólk er tilbúið að gefa fyrir Rauða krossinn sem stendur upp úr.