
Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum. Mynd: Rauði krossinn
Við erum orðin ótrúlega góðu vön. Að geta stokkið út í búð hvenær sem er sólarhringsins eftir einni fernu af mjólk. Að komast í apótekið nær alla daga. Að hafa ekki nokkrar áhyggjur þegar bensínljósið fer að loga í bílnum – það er alltaf svo stutt í næstu bensínstöð. Að borga alls staðar með kortum og símum. Að versla á netinu og fá allt sent heim að dyrum. Að stinga símanum í samband í næsta vegg þegar rafhlaðan er við það að tæmast. Að hlusta á útvarpið í símanum eða fá allar okkar fréttir á netinu. „En þetta eru ekki sjálfsögð og óskeikul þægindi,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum.
„Þau geta nefnilega klikkað. Og við þurfum að vera undir það búin. Þess vegna biðjum við fólk að vera klárt – að undirbúa sig fyrir að kerfin okkar geti brugðist tímabundið. Að öll geti verið sjálfbjarga heima hjá sér í þrjá daga.“ Þar er Aðalheiður að vísa í hið svokallaða þriggja daga verkefni Rauða krossins, 3dagar.is.

Ertu að byrja að huga að þínum viðbrögðum? Á myndinni eru þau fimm atriði sem þú gætir byrjað á að velta fyrir þér og finna til. Grafík: Rauði krossinn/Davíð Þór
En af hverju þrír dagar?
„Ef fólk getur bjargað sér sjálft án utanaðkomandi aðstoðar í þrjá daga gefur það viðbragðsaðilum nauðsynlegt svigrúm til að sinna neyðartilvikum,“ svarar Aðalheiður. Hún dregur því næst upp sviðsmynd sem gæti auðveldlega raungerst á Íslandi: Langvarandi óveður skellur á. Rafmagnið fer. Fólk vaknar upp við vondan draum, á hvorki rafhlöður í vasaljósið, hleðslubanka fyrir símann né mat sem auðvelt er að snæða án mikillar fyrirhafnar. Aðeins ein tafla af blóðfitulækkandi lyfinu er eftir í pakkanum og það vantar líka kattasand. Hundamat.
Það er allt á kafi í snjó en það hlýtur að reddast að skjótast út í búð og apótek. Með viðkomu á bensínstöðinni því bensínljósið er farið að loga. Á planinu við bensínstöðina situr fjölskyldubíllinn hins vegar fastur í skafli. Þá vaknar sú spurning hvort eyða skuli síðasta prósentinu af hleðslunni á símanum til að googla símanúmerið hjá björgunarsveitinni – eða hringja beint í neyðarnúmerið 112. Til að fá einhvern til að kippa bílnum upp úr skaflinum. Vitandi að björgunarsveitirnar eru að festa þakplötur á skólahúsinu, aka öldruðum manni með hjartaverk á spítala og koma lækni og hjúkrunarfræðingi sem eiga næstu vakt á spítalanum í vinnuna.
„Þetta gengur út á að draga úr álagi á viðbragðsaðila á neyðarstundu,“ ítrekar Aðalheiður, „svo þeir geti sinnt bráðatilvikum og lífsbjargandi verkefnum“.

Aðalheiður í Samhæfingarstöð almannavarna að fylgjast með gangi mála á flugslysaæfingu á Reykjavíkurflugvelli.
Rauði krossinn hóf þriggja daga verkefnið fyrir um áratug. Á það hefur reglulega verið minnt en undanfarna mánuði hefur meiri athygli verið vakin á því en oftast áður. Skýringin á því er sú að fyrirtækið Rio Tinto veitti félaginu styrk til að efla viðnámsþrótt. Það gerðist í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesi. Þeir atburðir sýndu svart á hvítu að þegar innviðir á borð við rafmagn og vatnsveitu laskast getur það haft víðtæk áhrif á daglegt líf fólks sé það ekki undirbúið.
„Við fundum það að þetta ástand kom greinilega mörgum í opna skjöldu og að það væri mikil þörf á því að halda boltanum á lofti og minna rækilega á þriggja daga verkefnið okkar,“ segir Aðalheiður. Það sé eins með það og öll önnur forvarnarverkefni; á þau þurfi stöðugt að minna. Hreyfing Rauða krossins um allan heim hefur lagt áherslu á að efla viðnámsþrótt og seiglu samfélaga. Það hefur enda sýnt sig að þar sem undirbúningur er fyrir hendi farnast fólki best. „Auðvitað er ekki hægt að búa sig fyllilega undir allar aðstæður,“ segir Aðalheiður, „en ef við getum bjargað okkur sjálf í nokkra daga getur það algjörlega skipt sköpum um framhaldið“.
Neyðarástand getur verið af ýmsum toga. Það getur orðið vegna náttúruhamfara, líkt og landsmenn þekkja orðið vel, vegna óveðurs eða vegna annarra utanaðkomandi þátta sem valda langvarandi rafmagnsleysi eða röskun á öðrum kerfum. „Við getum misst hitann af húsinu okkar. Við getum misst kalda vatnið. Og hvað ætlum við þá að gera?“

Aðalheiður kynnti Þriggja daga verkefnið á Neyðarvarnaþingi sem haldið var í Reykjanesbæ.
Aðalheiður segir markmið verkefnisins vera að fræða en ekki hræða. Skiljanlega geti fólki brugðið þegar talað sé um að birgja sig upp af dósamat, reiðufé og að eiga útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum. „Fyrir nokkrum áratugum var það raunveruleiki okkar margra að rafmagnið færi af í vondu veðri og við kipptum okkur ekkert sérstaklega upp við það,“ segir Aðalheiður og brosir.
„En hraðar tækniframfarir hafa orðið á mörgum sviðum og rafmagnsleysi er fátítt og varir yfirleitt aðeins í skamman tíma. Og nú eru kynslóðir orðnar fullorðnar sem hafa allt sitt líf alist upp við þessa öryggistilfinningu. Við hin höfum svo kannski orðið værukær líka. En rafmagnsleysi, og jafnvel langvarandi, er ekki eitthvað fjarlægt fyrirbæri sem heyrir nú sögunni til. Síður en svo. Við sáum það til dæmis vel í óveðrinu hér á landi í desember 2019. Við sáum það líka í rafmagnsleysinu á Íberíuskaga í fyrra að ekki var hægt að nota kort í verslunum. Þeir sem áttu reiðufé gátu verslað en aðrir ekki.“
En finnst Aðalheiði auglýsingaherferðin hafa skilað sér?
„Hún hefur gert það að því leyti að fólk er flest mun meðvitaðra um þriggja daga verkefnið finnst mér. Um viðlagakassann til dæmis. En ég óttast að fáir hafi þó tekið skrefið og útbúið sér slíkan kassa. Og aftur: Það er af því að við erum svo góðu vön. Þá ætla ég að segja eitt: Við getum ekki alltaf gert ráð fyrir að það komi einhver og bjargi okkur. Ástandið getur einfaldlega verið það alvarlegt að það sé ekki hægt að hjálpa öllum á sama tíma. Þá þurfa viðbragðsaðilar að forgangsraða.“
Taktu skrefið og útbúðu viðlagakassa
Hún hvetur því fólk eindregið til að taka skrefið, fara yfir fræðsluefnið á 3dagar.is og byrja að sanka að sér í viðlagakassann. „Þetta þarf ekki að vera leiðinlegt verkefni heldur jafnvel skemmtileg stund með fjölskyldunni við eldhúsborðið.“
Þá væri hægt að byrja á að spyrja: Hvað hér á heimilinu okkar þarf rafmagn? Ef eldavélin virkar ekki, hvað eigum við að hafa í kvöldmat? Og ef sjónvarpið virkar ekki, hvað getum við gert til að stytta okkur stundir? „Við getum ekki gert ráð fyrir að allt virki, öllum stundum. Það er brýnt að við áttum okkur öll á því. Það felst mikið öryggi í því að vera vel undirbúin.“
Heimsmálin eru ekki beint að vekja bjartsýni hjá fólki þessi misserin. Er áhersla á þriggja daga verkefnið núna eitthvað tengt því ástandi?
„Ekki beinlínis en vissulega hefur umræða um fjölþáttaógnir svokallaðar, þar sem til dæmis er ráðist á innviði, kallað á að samfélög séu búin undir það. Kollegar okkar á Norðurlöndunum, sem eiga jafnvel landamæri að ríkjum sem eru í stríði, leggja áherslu á þetta.
Hér á landi er neyðarástand vegna náttúruhamfara mun líklegra. En undirbúningurinn er sá sami. Boðskapurinn er sá sami. Að við getum verið sjálfum okkur næg og engum háð um aðstoð í einhvern tíma.“



