Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

„Er ég að tala við manneskju?“

Einmanaleiki Malthing 1646

Fullt var út úr dyrum á morgunmálþingi Rauða krossins um einmanaleika sem fram fór í húsakynnum félagsins í Efstaleiti 9. október síðastliðinn. Yfirskrift þingsins var „Að tengjast er að tilheyra“ og var þar fjallað um nýjustu rannsóknir á einmanaleika, nýjustu kenningar um víddir hans og hvað er verið að gera og hvað væri hægt að gera til að bæta líðan fólks.

„Einmanaleiki er meira en það að vera einn,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins, við upphaf fundarins. „Hann getur líka birst þegar okkur finnst við standa utan við, okkur vantar stuðning og tengingu við annað fólk og hann getur snert okkur öll, alveg óháð aldri, uppruna eða aðstæðum.“

 

 

Dóra sagði tilgang málþingsins þann að auka skilning okkar á einmanaleika í samfélaginu og „stuðla að því að einmanaleiki sé ekki feimnismál eða tabú.“

Segja má að tengsl við fólk og á milli fólks séu rauður þráður í starfi Rauða krossins á Íslandi. Í mörgum verkefnum félagsins er unnið að því að skapa vettvang fyrir fólk til að kynnast og eiga í jákvæðum og gefandi samskiptum. „Þótt verkefni Rauða krossins séu ólík í framkvæmd tengjast þau öll sama markmiði,“ sagði Dóra Björt. „Þau snúast um mannúð, að vera til staðar fyrir hvert annað, að skapa aðstæður þar sem fólk upplifir öryggi, virðingu og tilfinninguna um að tilheyra.“

Einmanaleiki Malthing 1529
Vinaverkefni til að rjúfa félagslega einangrun

„Þegar við erum að tala um einmanaleika þurfum við að muna að á bak við allar tölur eru manneskjur,“ sagði Alda Björk Harðardóttir, verkefnisstjóri félagslegra verkefna hjá Höfuðborgardeild Rauða krossins. „Þetta eru manneskjur sem búa einar, manneskjur sem hafa misst tengsl, manneskjur sem hafa lítið félagslegt net og manneskjur sem einfaldlega vantar einhvern til að tala við.“ Hún minnti á að einmanaleiki er lýðheilsuvandi sem hefur áhrif á heilsu og líðan fólks.

Með félagslegum verkefnum Rauða krossins, sem oft eru kölluð vinaverkefnin, er búinn til vettvangur fyrir fólk til að tengjast. Vinaverkefnin skiptast í heimsóknarvini, hundavini, símavini og gönguvini. „Hugmyndin er í raun mjög einföld,“ sagði Alda. „Að tengja saman tvo einstaklinga og skapa rými fyrir félagsskap, samtal, virkni og nærveru.“

Í dag eru 290 virk pör í verkefninu heimsóknarvinum. Reiknað er með að hvert par hittist að jafnaði einu sinni í viku, í um klukkutíma í senn. Samveran þarf ekki að einkennast af öðru en því að spjalla yfir kaffibolla, hlæja saman og styðja hvort annað, sagði Alda. „Slíkar samverustundir geta skipt viðkomandi einstaklinga gríðarlega miklu máli.“

Niðurstöður úr ánægju- og gæðakönnunum Rauða krossins, sem lagðar eru fyrir þátttakendur í vinaverkefnunum, sýna að þeir upplifa að verkefnið dragi úr einmanaleika og félagslegri einangrun. Þátttakendur hlakka til heimsóknanna og finnst þær gefa þeim aukinn tilgang. „Verkefnin snúast ekki bara um þessa einu heimsókn,“ sagði Alda. „Þau snúast um að einhver spyrji okkur hvernig við höfum það, að einhver muni eftir því hvað við vorum að tala um í síðustu viku. Að við vitum að við eigum von á einhverjum aftur. Að það sé einhver að hugsa til okkar.“

Rauði krossinn vill ná til fleiri einstaklinga og fjölbreyttari hópa með vinaverkefnunum. Til að svo megi verða vantar fleiri sjálfboðaliða í verkefnin.

Sækja um sjálfboðaliðastarf

Ungt og einmana fólk

Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis, hóf sitt erindi á því að segja að einmanaleiki væri sannarlega lýðheilsumál en stutt væri síðan farið var að hugsa um hann á þann veg. Embætti landlæknis hefur vaktað einmanaleika meðal íslensku þjóðarinnar í áratug.

Hún sagði fólk upplifa einmanaleika við mismunandi aðstæður og hann væri ekki hægt að skilgreina út frá fjölda vina, svo dæmi sé tekið. „Við getum verið einmana þótt við séum umkringd öðru fólki og líka verið ein án þess að upplifa okkur einmana,“ sagði Sigrún.

Rannsóknir sýna að einmanaleiki hefur aukist en sú þróun er ekki nýtilkomin heldur hefur hún verið að eiga sér stað í marga áratugi. Aukningin hefur hins vegar orðið hraðari á 21. öldinni.

Einmanaleiki Malthing 1501

Rannsóknir sýna að einmanaleiki hefur aukist en sú þróun er ekki nýtilkomin heldur hefur hún verið að eiga sér stað í marga áratugi, sagði Sigrún. Aukningin hefur hins vegar orðið hraðari á 21. öldinni. Mynd: Rauði krossinn/Nadía Ýr

Fyrirfram hefði mátt ímynda sér, miðað við umræðuna í samfélaginu, að einmanaleiki væri fyrst og fremst bundinn við eldra fólk en rannsóknir Landlæknisembættisins hafa þó sýnt fram á annað. „Raunin er að einmanaleiki er algengastur meðal unga fólksins,“ sagði Sigrún. „Ungt fólk er sá hópur í samfélaginu sem er mest einmana.“ Um 30 prósent framhaldsskólanema segjast upplifa sig oft eina og fjórðungur segist eiga í erfiðleikum með samskipti við samnemendur. Það er að sögn Sigrúnar vísbending um að á þessum árum gerist eitthvað í félagstengslum ungmenna á Íslandi. „Og við þurfum að fara að horfa betur á það.“

Einmanaleiki hefur frá upphafi könnunar Embættis landlæknis verið mestur hjá aldurshópnum 18–24 ára. Á stuttum tíma hafi hins vegar orðið gríðarleg aukning í einmanaleika hjá næsta aldursbili þar á eftir, þ.e. 25–34 ára, eða þreföldun á einum áratug.

Sigrún sagði að þegar rætt væri um aðgerðir gegn einmanaleika þyrfti bæði að horfa til almennra aðgerða fyrir allt samfélagið og markvissari aðgerða fyrir þá hópa sem búa helst við einmanaleika og skort á félagslegum tengslum.

Fólk vill samskipti við fólk

Starfsfólk og sjálfboðaliðar á Hjálparsímanum 1717 veita sálrænan stuðning, virka hlustun og eru til staðar fyrir alla sem á þurfa að halda allan sólarhringinn. Um 20 þúsund samtöl berast í gegnum síma og netspjall árlega. Einnig er veitt ráðgjöf um í hvaða úrræði viðkomandi getur leitað.

Einmanaleiki Malthing 1590

Sandra Björk Birgisdóttir er verkefnastjóri hjá Hjálparsímanum 1717 sem Rauði krossinn rekur.

Hópur fólks sem býr við félagslega einangrun hefur samband reglulega. „Þau hafa jafnvel engan annan til að tala við og hafa þá samband við okkur,“ sagði Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri hjá 1717, í erindi sínu á málþinginu. Þegar fólk sem býr við félagslega einangrun hefur samband er því að sögn Söndru gjarnan bent á vinaverkefni Rauða krossins.

Þegar ungt fólk hefur samband við 1717 í gegnum netspjallið byrjar það oft á því að spyrja: Er ég að tala við manneskju? „Það er svo algengt að tala við gervigreind úti um allt,“ sagði Sandra og tók dæmi: „Þú hefur samband við fyrirtæki af því að þú þarft aðstoð en það er bara gervigreind sem svarar þér.“

Að eiga „í samskiptum“ við gervigreind er orðið útbreitt og sjálfsagt. „En það er ekki það sem við [manneskjur] þurfum. Við viljum þessi mannlegu tengsl. Við viljum tala við manneskju sem getur skilið þær tilfinningar sem við erum að upplifa, speglað upplifun okkar og kannski sett sig í okkar spor.“

Ungt fólk lýsi því gjarnan í samtölum við 1717 að utan skóla hafi það enga jafnaldra til að tala við og eigi enga vini sem það geti átt í djúpum og persónulegum samskiptum við.

Víddir einmanaleikans

„Einmanaleiki er meira en félagsleg samskipti,“ sagði Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. „Þegar við tölum um einmanaleika þá er auðvelt að detta í þá gildru að líta á hann sem einfaldlega skort á félagslegum samskiptum, félagsskap eða fólki sem eigi að vera í kringum okkur. En fræðin og rannsóknir sýna okkur að málið er talsvert flóknara en svo.“

Einmanaleiki Malthing 1616

Halldór sagði það skipta miklu máli að átta sig á því hvaða víddir einmanaleikans væri verið að glíma við vegna þess að úrræðið verði að passa eðli einmanaleikans.

Einmanaleiki er huglæg upplifun, tilfinning sem er oftast óþægileg og fólk getur upplifað sáran einmanaleika þrátt fyrir að vera innan um annað fólk. „Félagsleg einangrun eykur sem sagt hættuna á einmanaleika en aukin félagsleg samskipti draga ekki sjálfkrafa úr einmanaleika.“

Halldór sagði nú almennt rætt um þrjár víddir einmanaleikans: þann félagslega, tilfinningalega og tilvistarlega.

Félagslegi einmanaleikinn einkennist af skorti á tengslaneti og snýst um magn og tíðni samskipta. Sá tilfinningalegi er skortur eða missir á nánum, þroskandi tengslum og snýst um gæði samskipta frekar en magn, sagði Halldór.

Þegar stórar spurningar vakna

Þriðja víddin, tilvistarlegur einmanaleiki, hefur svo fengið ört vaxandi athygli í rannsóknarheiminum að undanförnu. „Þetta er einmanaleiki sem vísar til djúprar upplifunar einstaklings á aðskilnaði frá öðrum og einhverjum skorti á tilgangi með lífinu,“ útskýrði Halldór. „Þessi tilfinning getur skapast þegar fólk stendur frammi fyrir stórum spurningum tilverunnar, alvarlegum veikindum, hrörnun eða miklum breytingum í lífinu. Og þessi einmanaleiki sprettur ekki af skorti á félagsskap heldur djúpri þrá eftir að fá tilgang og finnast maður vera skilinn, viðurkenndur og vera hluti af samfélagi.“

Halldór sagði það skipta miklu máli að átta sig á því hvaða víddir einmanaleikans væri verið að glíma við hverju sinni vegna þess að úrræðið verði að passa eðli einmanaleikans. „Ef einstaklingur upplifir félagslegan einmanaleika getur opið félagsstarf, hópastarf og samverustundir verið rétta svarið,“ sagði hann. „Ef einstaklingur upplifir tilfinningalegan einmanaleika dugir oft ekki að bjóða honum í stóran hóp. Þar þurfa að koma til verkefni eins og heimsóknarvinir Rauða krossins, samvera tveggja einstaklinga, þar sem traust, nánd og gæði fá að eiga sér stað og þróast yfir tíma.

Ef einstaklingur upplifir tilvistarlegan einmanaleika þá þurfum við samræðu. Við þurfum samfylgd sem snýst um að hlusta, sýna samkennd og virðingu og hjálpa fólki við að setja orð á tilgang lífsins.“

Þegar við mætum fólki í lífi og starfi þurfum við að spyrja okkur hvers konar tengsl eða hvaða víddir einmanaleikans við erum að tala um. „Með því að dýpka skilning okkar á eðli einmanaleika getum við veitt hniðmiðaðri stuðning og komið í veg fyrir félagslega einangrun og stuðlað að bættri lýðheilsu um leið.“