Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Verslunin FLÓ slær í gegn

Flo1

Stórkostlegt útsýni er frá versluninni FLÓ.

Hornafjarðardeild Rauða krossins er komin í stórt og gott húsnæði með starfsemi sína í Björgunarmiðstöðinni á Höfn að Sæbraut 5. Þar hefur verið komið upp versluninni FLÓ sem sjálfboðaliðar deildarinnar sjá um af mikilli alúð og eljusemi.

Verslunin er stórglæsileg og vörurnar sem þar eru á boðstólum njóta sín einstaklega vel í þessu bjarta rými með útsýni til jökla. Notuð föt, skór og ýmislegt fleira spennandi fylla hillur og slár. Og nýjar vörur bætast við í hverri einustu viku.

Flo Sjalfbodalidi

Eyrún Axelsdóttir, formaður Hornafjarðardeildarinnar, segir mjög ánægjulegt hversu vel FLÓ hefur verið tekið, jafnt af Hornfirðingum og öðrum. „Við finnum að fólki þykir spennandi að koma í búðina,“ segir Eyrún um viðtökurnar. Margar hendur þarf til að gera verslunina svona fallega og sjá til þess að vöruúrvalið sé gott. Tólf konur, allt sjálfboðaliðar, eru á skrá til afgreiðslu í versluninni þegar hún er opin og fjórar til viðbótar flokka allan þann varning sem Rauða krossinum berst til endursölu. Tekið er á móti framlögum í formi heilla og hreinna klæða og skófatnaðar á opnunartíma verslunarinnar.

FLÓ var opnuð á sumardaginn fyrsta og er því komin ágætis reynsla á reksturinn. Rétt eins og í öðrum fatabúðum Rauða krossins víða um land er markmiðið með rekstrinum tvenns konar: Að styðja við hringrásarhagkerfið með sölu á notuðum fatnaði og hlutum og að styðja fjárhagslega við mannúðarverkefni félagsins.

„Við erum mjög þakklát fyrir alla okkar góðu sjálfboðaliða, án þeirra væri FlÓ ekki til,“ segir Eyrún. „Við erum einnig þakklát öllum sem gefa okkur föt og fleira til að selja. Og svo erum við í skýjunum með móttökurnar.“

FLÓ er alla jafna opin alla fimmtudaga milli kl. 16 og 18 og fyrsta laugardag í hverjum mánuði milli kl. 14 og 16. Nú í aðdraganda jóla stendur til að lengja opnunartímann og verður það auglýst á Facebook-síðu FLÓar.

Í nýju húsnæði Hornafjarðardeildar Rauða krossins er fleira en FLÓ. Þar er einnig skrifstofa deildarinnar, barnahorn, aðstaða til funda- og námskeiðahalds, fataflokkun og kósíhorn. Fjöldahjálparkerran er svo staðsett í sama húsnæði hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar. „Við erum afskaplega ánægð með þetta skref og sjáum fyrir okkur aukna starfsemi á ýmsum sviðum og mikið líf,“ segir Eyrún að lokum.

FLÓ á Facebook: Rauðakrossbúðin FLÓ – Höfn

FLÓ á Instagram: raudikross_hofn