Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning


Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins buðu skipverjum af Jökli ÞH og aðstandendum þeirra sálrænan stuðning í gærkvöldi og nótt. Hjálparsími Rauða krossins 1717 var virkjaður sem upplýsingasími almannavarna og þar voru aðstandendum veittar upplýsingar um framvindu björgunaraðgerða meðan á þeim stóð.
Aðstandendum var einnig boðið að safnast saman í húsnæði útgerðarinnar á Húsavík sem og í höfuðstöðvum Rauða krossins í Reykjavík. Þar tóku sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum Rauða krossins á móti fólki ásamt fulltrúum annarra viðbragðsaðila og prestum.
Áfallahjálp stendur aðstandendum og skipverjunum áfram til boða hjá Rauða krossinum og víðar. Þjóðkirkjan mun bjóða öllum þeim sem þess óska að fá samtal frá presti eða djákna, með því að senda erindi á afallahjalp@kirkjan.is. Einnig er hægt að leita til heilsugæslu í síma 1700 og félagsþjónustu sveitarfélaga.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn allan sólarhringinn og þangað geta allir leitað og fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf. „Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins og sömuleiðis geta svona alvarlegir atburðir ýft upp gömul sár,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri hjá Rauða krossinum. „Við hvetjum þau sem óska aðstoðar og stuðnings að hafa samband við 1717, hvort sem það eru ástvinir skipverjanna, þau sem komu að björgunaraðgerðunum eða aðrir sem finna til vanmáttar eða vanlíðunar vegna slyssins.“