Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Það býr mikil seigla í skjólstæðingum Frú Ragnheiðar

Anika Noack2

Anika Noack segir skjólstæðinga Frú Ragnheiðar hafa kennt sér mjög margt. Mynd: Sunna Ósk

„Það var mikilvægt fyrir mig að átta mig á því hvað býr mikil seigla í einstaklingum með vímuefnavanda. Ég hugsa oft: „Vá, hvað þau eru sterk.“ Þau finna bjargráð við öllu.“

Þannig lýsir ljósmóðirin og hjúkrunarfræðingurinn Anika Noack því sem mest hefur komið henni á óvart við sjálfboðaliðastörf sín í Frú Ragnheiði. Anika var valin einn af sjálfboðaliðum ársins hjá höfuðborgardeild Rauða krossins nýverið. Í rökstuðningi deildarinnar segir að Anika sé ómetanlegur sjálfboðaliði og að framlag hennar einkennist af fagmennsku, ábyrgð og óeigingirni. Hún búi yfir víðtækri þekkingu á skaðaminnkun og heilsuvernd og sé mikilvægur hlekkur í sjálfboðaliðahópnum, ekki síst þegar komi að þróun og umbótum þjónustunnar sem veitt er í Frú Ragnheiði.

„Þau hafa kennt mér mjög margt,“ heldur Anika áfram um fólkið sem nýtir sér skaðaminnkandi þjónustu Frú Ragnheiðar. „Það er ekki þannig að ég sé að gefa meira af mér en ég fæ til baka, bara alls ekki.“

Anika er fædd í Hamborg í Þýskalandi en hefur búið á Íslandi í mörg ár, nú í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún starfar sem ljósmóðir hjá meðgönguvernd Heilsugæslunnar í Efra-Breiðholti og einnig í hlutastarfi sem hjúkrunarfræðingur í Konukoti, úrræði sem Rauði krossinn stofnaði á sínum tíma en er nú rekið af Rótinni.

Hún gerðist sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum árið 2022, fyrst í verkefni sem kallast Aðstoð eftir afplánun en frá árinu 2023 hefur hún starfað í Frú Ragnheiði.

Sækja um sjálfboðastarf

Þjónusta Frú Ragnheiðar er veitt í sérútbúnum bíl sem ekið er á höfuðborgarsvæðinu. Boðið er upp á nálaskiptaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og sálrænan stuðning og ráðgjöf. Í bílnum geta skjólstæðingar einnig fengið hlý föt og næringu.

Sjálfboðastarfið kallaði á hana

Anika á erfitt með að lýsa því í fáum orðum hvers vegna hún ákvað að gerast sjálfboðaliði. „Það kallaði einhvern veginn á mig,“ segir hún. „Sem hjúkrunarnemi var ég í verknámi á bráðadeild geð- og fíknisjúkdóma. Það kveikti eitthvað í mér og mig langaði að kynnast þessum málaflokki betur og gefa af mér það sem ég get.“

Áður en hún hóf sjálfboðastarfið fór hún á undirbúningsnámskeið og tók einnig námskeið í skyndihjálp og sálrænni skyndihjálp. Að auki fór hún á samskiptanámskeið sem hún telur hafa gagnast sér sérstaklega vel. „Að læra að hlusta virkilega á fólk án þess að dæma er undirstöðuatriði í því að vera sjálfboðaliði í Frú Ragnheiði.“

Mikið hlegið og spjallað

Starf Aniku í Frú Ragnheiði er fjölbreytt. Hún sér t.d. um að skipta um umbúðir á sárum, sauma sár og taka lífsmörk. Einnig felur starfið í sér að veita skjólstæðingum sálrænan stuðning, að benda þeim á stuðningsúrræði sem eru í boði, veita skaðaminnkandi fræðslu og afhenda búnað. „En svo er líka mikið hlegið saman og spjallað,“ segir hún.

Á hverri einustu vakt í Frú Ragnheiði segist hún læra eitthvað nýtt. „Það mikilvægasta sem ég hef lært er hversu dýrmætt það er að mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir. Það er eina vitið.“

Hún hefur fengið miklu meira út úr starfinu en hún átti von á. „Hjartað mitt hefur stækkað margfalt síðan ég byrjaði í Frú Ragnheiði. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir traustið sem skjólstæðingarnir sýna mér.“

Stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins þakkar Aniku heilshugar fyrir dýrmætt starf og það framlag sem hún hefur lagt í Frú Ragnheiði.