
Daria Andronachi hefur verið ráðin deildarstjóri Rauða krossins í Múlasýslu. Hún hóf störf í september. Mynd: Rauði krossinn/Davíð
„Ég er mjög ánægð með að hafa fengið tækifæri til að vera hluti af Rauða krossinum og mun leggja mig alla fram við að þróa og bæta verkefni og þjónustu Rauða krossins í Múlasýslu,“ segir Daria Andronachi sem hefur verið ráðin deildarstjóri Múlasýsludeildar Rauða krossins. Deildarstjórastaðan er ný og er Daria sú fyrsta sem gegnir henni. Áður var svæðisfulltrúi starfandi í deildinni en það er orðið nokkuð um liðið. „Þess vegna hafa ýmisleg verk safnast upp sem þarf að taka á,“ segir Daria.“ En ég er metnaðarfull manneskja og, eins og í öllum mínum verkefnum, mun ég leggja mig alla fram við að efla Múlasýslu og láta hana blómstra.“
Daria fæddist í Moldóvu en kom til Íslands árið 2017 til að elta þann draum að kynnast landinu. Eftir að hafa búið og unnið hér í eitt ár ákvað hún að flytja hingað til frambúðar og býr hún nú á Egilsstöðum ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Hún ákvað strax að læra íslensku til að auðvelda aðlögun sína að íslensku samfélagi og menningarlífi. Í dag er hún búin að ná góðum tökum á tungumálinu. „En ég er auðvitað ennþá að læra og bæta orðaforðann og málfræðina,“ segir hún.
Matur eflir tengsl
Daria er samskiptafræðingur að mennt og er með meistaragráðu í almannatengslum og auglýsingafræðum. Árið 2019 hóf hún störf hjá félagsþjónustunni í Múlaþingi. „Í því starfi dýpkaði ég þekkingu mína á íslensku og hefðum heimamanna.“
Hún hefur einnig unnið margvíslegt starf fyrir innflytjendur. Árið 2024 skipulagði hún fyrsta viðburðinn Connected by food þar sem íbúum Austurlands var boðið að útbúa rétt frá upprunalandi sínu og deila honum með gestum. Í ár sóttu 27 þátttakendur frá 14 löndum um að taka þátt og yfir 500 gestir komu til að smakka matinn og kynnast matarmenningu og hefðum íbúa Austurlands. Viðburðurinn hefur því bæði vaxið og fest sig í sessi.
„Tilgangurinn með þessum viðburði er einnig að styrkja samfélagið og auðvelda innflytjendum að aðlagast,“ segir Daria. „Og við vitum öll að matur og samvera er frábær leið til að kynnast og tengjast.“
Daria er með fleiri járn í eldinum því hún situr í stjórn Women in Iceland, samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi fyrir Austurland. Samtökin skipuleggja m.a. viðburði sem kallast World Food Café. „Þar útbúum við saman kvöldverð með þema ákveðins lands og ræðum á meðan um réttindi kvenna á Íslandi, áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir á hverjum degi og bjóðum upp á nauðsynlegan stuðning til að konum líði vel á Íslandi.“

Fyrsta stóra, staka verkefnið sem Daria tók að sér sem deildarstjóri Rauða krossins í Múlasýslu var að halda utan um og skipuleggja æfinguna Skjól 2026 á svæðinu. Á æfingunni verður opnun fjöldahjálparstöðva í rafmagnsleysi æfð. Kort: Rauði krossinn/Davíð
Og nú er hún gengin til liðs við Rauða krossinn og búin að taka við stöðu deildarstjóra í Múlasýslu. Fyrstu dagarnir í nýju starfi hafa verið annasamir eins og gefur að skilja. Það er að ýmsu að huga í deild sem nær yfir stórt landssvæði. Stærsta einstaka verkefni deildarinnar tengist neyðarvörnum, m.a. skipulagningu fjöldahjálparstöðva á þéttbýlisstöðum sýslunnar: á Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Seyðisfirði og Vopnafirði. „Þetta er stórt svæði og mikilvægt að skapa og viðhalda góðum tengslum milli sjálfboðaliða,“ segir Daria.
Ótrúlegur kraftur í sjálfboðaliðum
Sjálfboðaliðar gegna gríðarlega stóru og mikilvægu hlutverki í neyðarvörnum Rauða krossins um allt land sem og í flestum verkefnum hreyfingarinnar. Daria segir að í hópi sjálfboðaliða hjá deildinni sé dugmikið fólk með mikinn metnað fyrir hönd Rauða krossins. „Í sjálfboðaliðunum okkar býr ótrúlegur kraftur,“ segir Daria. „Þau eru alltaf í góðu skapi og vinna hratt og vel. Við bjóðum öll sem vilja skrá sig sem sjálfboðaliða velkomin til að vinna saman að góðum samfélagslegum verkefnum. Ég lofa því að það er bæði skemmtilegt og gefandi.“
Að mati Dariu eru sjálfboðastörf hjá Rauða krossinum upplögð fyrir alla, ekki síst innflytjendur, til að kynnast fólki í sinni heimabyggð og læra íslensku. „Að vera sjálfboðaliði er mjög gott tækifæri til að gera gagn fyrir sitt nærsamfélag og efla sig í leiðinni.“
Stefnt að fleiri verkefnum
Daria vill fjölga verkefnum hjá Múlasýsludeild og stækka þau sem fyrir eru og þá þarf samhliða að fjölga sjálfboðaliðum. „Ég hef í hyggju að þróa önnur verkefni hjá deildinni, svo sem vinaverkefni, íslenskukennslu fyrir innflytjendur, fataverkefni, nytjamarkað og önnur verkefni sem þörf er á hverju sinni.“
Stærsta verkefnið framundan hjá deildinni er æfing í opnun fjöldahjálparstöðva. Æfingin kallast Skjól 2026 og verður haldin um allt land laugardaginn 3. október. Á Austurlandi fer æfingin fram í Egilsstaðaskóla og hefst kl. 11. „Við bjóðum öllum sem vilja að koma við, kynna sér málin og spjalla yfir kaffibolla og súpu. Við búum á svæði þar sem mikilvægt er að vera viðbúin hamförum og vita hvernig á að bregðast við til að hjálpa fólki í erfiðleikum.“
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Seldu eigin hönnun til styrktar Rauða krossinum

Minningarorð um Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins

Fjall af flöskum breyttist í peninga fyrir Rauða krossinn