Almennar fréttir

Sendifulltrúar við störf í Bangladess

04. janúar 2019

Í október á síðasta ári fóru Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir og Kolbrún Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingar, í sínar fyrstu starfsferðir sem sendifulltrúar fyrir Rauða krossinn. Þær fóru til Cox Bazar í Bangladess þar sem þær störfuðu fram að jólum en alls hafa 26 sendifulltrúar á vegum Rauða krossins starfað við neyðartjaldsjúkrahús í kjölfar fólkflutnings yfir 900.000 Róhingja frá Mjanmar til Bangladess.

Í október á síðasta ári fóru þær Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir og Kolbrún Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingar, í sínar fyrstu starfsferðir sem sendifulltrúar fyrir Rauða krossinn. Þær fóru til Cox Bazar í Bangladess þar sem þær störfuðu fram að jólum en alls hafa 26 sendifulltrúar á vegum Rauða krossins starfað við neyðartjaldsjúkrahús í kjölfar fólkflutnings yfir 900.000 Róhingja frá Mjanmar til Bangladess.   Ingibjörg er komin heim eftir vel lukkaða ferð sem hún segir að hafi verið ótrúlega lífsreynslu.

Aðspurð um hvað var eftirminnilegast sagði hún að 9 ára stelpa sem hún hlúði að sé henni enn ofarlega í huga. Hún býr í flóttamannabúðunum í Cox Bazar og lenti í umferðarslysi þegar hún þurfti að fara yfir götu til þess að kaupa sér banana. Eftir slysið var brjóstkassi hennar illa farinn og var farið með hana á neyðartjaldsjúkrahús Rauða krossins sem er á þessu svæði. Við nánari skoðun kom í ljós að stúlkan var með nokkur brotin rifbein, skurði og mar. Starfsfólk Rauða krossins tók á móti henni, framkvæmdi á henni aðgerð og hlúði að meiðslum hennar. Hún lá á barnadeild í rúma viku og fór svo heim til sín aftur. Hún samþykkti að  myndin að ofan væri tekin af henni þar sem hún fær meðferð vegna beinbrotanna.

Ákveðið var að sjúkrahúsið starfi út árið 2018 vegna þess hve þörfin er mikil en almennt eru neyðartjaldsjúkrahús aðeins sett upp til afar skamms tíma. Sjúkrahúsið hefur veitt rúmlega 52.000 einstaklingum aðstoð síðan í október 2017. Af þessu er ljóst að mikil þörf er á því að halda úti starfandi neyðarsjúkrahúsi á þessu svæði þar sem gríðarlegur fjöldi flóttamanna er á þessu svæði sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda.  Frá og með 1. janúar 2019 mun Rauð hálfmáninn taka við rekstri spítalans og verður honum breytt í almenna heilsugæslu til að halda þessari lífsnauðsynlegu aðstoð áfram.  

 

\"Bazaar\"Á myndinni má sjá Ingibjörgu, Kolbrúnu ásamt Jóhönnu  Elísabetu Jónsdóttur sem einnig starfaði við Cox Bazar neyðartjaldsjúkrahúsið í nóvember. 

Fréttir af starfinu

Fréttayfirlit

Mannúð í heila öld - Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli

Almennar fréttir 10. desember 2024

Í dag, 10. desember, fagnar Rauði krossinn á Íslandi 100 ára afmæli sínu. Árið 1924 var félagið stofnað vegna aukinnar vitundar um þörfina fyrir mannúðarstarfsemi á Íslandi en skortur var á kerfisbundinni neyðaraðstoð og félagslegum stuðningi fyrir þá sem lentu í áföllum. Í dag er Rauði krossinn orðinn að ómissandi hluta af samfélaginu, með sjálfboðaliðum og starfsmönnum um allt land. 

Rauði krossinn 100 ára - söfnun í samstarfi við Finnsson & Co

Almennar fréttir 03. desember 2024

Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli sínu þann 10. desember 2024. Af því tilefni höfum við sett af stað landssöfnun þar sem við óskum eftir stuðningi fyrirtækja og félagasamtaka um land allt við innlend verkefni RKÍ. Við njótum liðsinnis fyrirtækisins Finnsson & Co við söfnunina, en það hefur áður sinnt sambærilegum útgáfu- og fjáröflunarverkefnum.

Kristín S. Hjálmtýsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi

Almennar fréttir 02. desember 2024

Stjórn Rauða krossins á Íslandi og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins síðastliðin 9 ár, hafa gert samkomulag um starfslok hennar. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði Kristínar, sem hefur nú þegar látið af störfum. Arna Harðardóttir sem gengt hefur starfi fjármálastjóra mun taka við verkefnum framkvæmdastjóra samhliða sínum störfum þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn. Staðan verður auglýst innan skamms.