Fara á efnissvæði
Leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp

Vilt þú verða leiðbeinandi í skyndihjálp?

Skyndihjalp Myndataka 22

Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á að þjálfa þátttakendur í að kenna skyndihjálp. Þeir sem sækja námskeiðið þurfa því að hafa góða skyndihjálparþekkingu til að byggja á, auk menntunar eða starfsreynslu sem nýtist. Einstaklingar á landsbyggðinni eru hvattir til að sækja um og einnig einstaklingar sem tala þriðja tungumálið.    

Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðinu er tveggja ára samstarfssamningur við Rauða krossins. Skuldbindingin nemur að lágmarki fjórum námskeiðum á ári (2 – 4 klst námskeið) og er greitt samkvæmt gildandi verðskrá Rauða krossins. 

Fyrirkomulag námskeiðsins

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð sem leiðbeinandi í skyndihjálp. 

Forkröfur 

Til þess að fá að sitja leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp þarf: 

  • Umsókn að vera samþykkt og námskeiðsgjald greitt
  • Að hafa lesið undirbúningsefni námskeiðsins

Lengd námskeiðs

  • Undirbúningur á netinu: 10-12 klst
  • Leiðbeinendanámskeið: 32 klst 
  • Hæfnismat: 6 klst (undirbúningur 2 klst og skyndihjálparnámskeið 4 klst) 

Hámarksfjöldi

20 þátttakendur 

Námskeiðsgjald

Námskeiðsgjald er 250.000 krónur, kennslugögn og veitingar eru innifalin. 
Tekið verður við umsóknum frá 3. desember 2025 – 22. janúar 2026 
Öllum umsóknum verður svarað í síðasta lagi 25. janúar 2026 

Frekari upplýsingar veitir Hildur Vattnes, sérfræðingur í skyndihjálp Rauða krossins: 
hildurvk@redcross.is