Almennar fréttir
Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum
06. mars 2026
Aðalfundur Suðurnesjadeildar Rauða krossins verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 18.00 á Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ.
Dagskrá fundarins
- Kosning fundastjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.
- Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
- Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram til kynningar.
- Innsendar tillögur skv. 6. mgr. 19. gr.
- Kosning deildarstjórnar skv. 20 gr.
- Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra skv. 8. mgr. 19. gr.
- Neyðarvarnafulltrúi kynnir Viðnámsþrótt Suðurnesja, verkefni styrkt af Rio Tinto.
- Önnur mál.
Kjörgengir í stjórn og atkvæðarétt hafa allir félagar, 18 ára og eldri, sem greiddu félagsgjöld fyrir árslok 2025. Fundurinn er opin öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning. Kosningar í allar trúnaðarstöður deildarinnar eru leynilegar sbr. 9.tl. 19.gr. laga Rauða krossins á Íslandi.
- Stjórn Rauða krossins á Suðurnesjum.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Kvaddur eftir 30 ára starf fyrir Rauða krossinn
Almennar fréttir 30. mars 2026Gunnar Margeir Baldursson hefur látið af störfum varaformanns Suðurnesjadeildar Rauða krossins og var kvaddur með góðum þökkum á aðalfundi deildarinnar nýverið.