Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Dóra Björt ráðin deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins

Dóra Björt Góð Upplausn

Dóra Björt Guðjónsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins og mun hefja störf þann 1. september næstkomandi.

Höfuðborgardeild Rauða krossins er stærsta deild félagsins og sinnir fjölmörgum mannúðarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu öllu. Starfsmenn eru um 35 talsins og sjálfboðaliðar um 600.

Undir deildina heyra skaðaminnkunarverkefnin Ylja og Frú Ragnheiður, verkefni tengd félagslegum stuðningi við flóttafólk sem og við fólk sem er að afplána fangelsisdóma eða hefur nýlokið þeim. Þá heldur deildin úti margvíslegum félagslegum verkefnum, svokölluðum vinaverkefnum, sem miða að því að auka virkni fólks og rjúfa félagslega einangrun þess. Einnig heyrir hin öfluga Kvennadeild, sem nú hefur starfað í 60 ár, undir höfuðborgardeildina.

Dóra Björt er með BA-gráður í bæði heimspeki og alþjóðafræðum frá Óslóarháskóla og diplómu á meistarastigi í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún er 38 ára.

Dóra býr að fjölbreyttri reynslu þar sem mannréttindi, félagsleg þátttaka og þjónusta við ólíka hópa eru grunnstef. Í átta ár gegndi hún ýmsum leiðtogahlutverkum sem borgarfulltrúi í borgarstjórn og sem oddviti og formaður fagráða, stýrihópa og stjórna fyrirtækja.

Í þeim störfum beitti hún sér m.a. fyrir því að skaðaminnkun yrði skilgreind sem leiðarljós í velferðarstefnu borgarinnar og studdi hún uppbyggingu „Húsnæði fyrst“-úrræða. Þá hefur hún einnig unnið að mannréttinda- og jafnréttismálum á vettvangi félagasamtaka, bæði á Íslandi og í Noregi.

„Ég hef lengi haft brennandi áhuga á samfélagsmálum, mannréttindum og þjónustu við fólk í viðkvæmri stöðu. Því er það bæði mikill heiður og mikil ábyrgð að fá tækifæri til að leiða höfuðborgardeild Rauða krossins,“ segir Dóra Björt. „Rauði krossinn gegnir einstöku og mikilvægu hlutverki, bæði í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu, og ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum.

Markmið mitt verður að byggja á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður, styðja við starfsfólk og sjálfboðaliða og leggja mitt af mörkum til að þróa starfsemina áfram þannig að hún nýtist sem best þeim sem á henni þurfa að halda, í anda mannúðar, fagmennsku og virðingar.“

Rauði krossinn hlakkar til samstarfsins við Dóru Björt og þakkar Ósk Sigurðardóttur, fráfarandi deildarstjóra, jafnframt kærlega fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.