
Hermann og Hlynur færðu Rauða krossinum söfnunarféð og fengu viðurkenningu fyrir framtakið. Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór
„Þetta byrjaði allt á einni flösku með grænum vökva og glimmeri,“ segir Hlynur Rúnarsson sem kom ásamt besta vini sínum, Hermanni Skírnissyni, í höfuðstöðvar Rauða krossins á dögunum með peninga sem þeir höfðu safnað fyrir Rauða krossinn. Sagan af grænu „skrautflöskunni“ sem breyttist svo í fjall af flöskum og loks í peninga er löng en í stuttu máli er hún þessi: Tveir vinir, níu að verða tíu ára, ætluðu að verða sér úti um eina flösku til að búa til sína eigin „skrautflösku“ en ákváðu svo að hefja söfnun fyrir Rauða krossinn og steingleymdu upphaflega markmiðinu. „Það var svo gaman að safna fyrir Rauða krossinn!“
Hlynur og Hermann eru í Háteigsskóla í Reykjavík og í haust byrjuðu þeir í 5. bekk. Þeir búa í Hlíðahverfinu og þar fór söfnun þeirra á flöskum og dósum fram. „Þetta voru örugglega sextán stigagangar eða eitthvað,“ rifja þeir upp. Aðferðin var einföld: Að banka upp á og biðja um flöskur og dósir til styrktar Rauða krossinum.

Félagarnir á bólakafi í stóru fjalli af dósum og flöskum.
Mjög vel var tekið í söfnunina og félagarnir burðuðust heim til Hermanns með marga stóra poka, stútfulla af flöskum. „Við fylltum bílskúrinn!“ segir Hermann. Þeir tóku líka að sér að moka tröppur í vetur og fengu greitt í beinhörðum peningum. Allt fór það líka í söfnunina. Þegar allt er tekið saman söfnuðu þeir rúmlega 38 þúsund krónum sem þeir afhentu Rauða krossinum. „Rauði krossinn hjálpar fólki, bæði fullorðnum og börnum,“ segja þeir. „Þess vegna vildum við safna fyrir hann.“
Rauði krossinn þakkar Hermanni og Hlyni kærlega fyrir að vera í liði með mannúðinni og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.



