Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Gengu 43 kílómetra fyrir Rauða krossinn

Gongustrakar

Vinirnir komu saman í höfuðstöðvar Rauða krossins í Efstaleiti og færðu félaginu söfnunarféð.

Fimm félagar úr Réttarholtsskóla í Reykjavík gengu nýverið frá skólanum að Gljúfrasteini í Mosfellsdal og til baka, um 43 kílómetra leið, og söfnuðu áheitum. Söfnunarféð, rúmlega 203 þúsund krónur, fékk Rauði krossinn. Vilja þeir að peningurinn verði nýttur til að efla innanlandsverkefni félagsins sem m.a. eru Hjálparsíminn 1717, Frú Ragnheiður og Ylja.

Þessir vösku og góðhjörtuðu drengir heita Evan Helgi Rjabchuk Hauksson, Pétur Hrafn Birgisson, Kristján Pétur Ingólfsson, Sindri Emilsson og Ólafur Breki Sigurðsson. Þeir eru á aldrinum 15–16 ára.

Áheitum var safnað í gegnum Facebook og voru ættingjar og vinir duglegir við að heita á þá. Samtals söfnuðu þeir hvorki meira né minna en 203.700 krónum sem þeir hafa þegar afhent Rauða krossinum.

Rauði krossinn þakkar félögunum fimm kærlega fyrir stuðninginn og hvetur fleiri ungmenni til að feta í þeirra fótspor.