Almennar fréttir

Marel og Rauði krossinn í samstarf um aukið fæðuöryggi

17. nóvember 2020

Marel styrkir Rauða krossinn um eina milljón evra eða um 162 milljónir íslenskra króna sem verða nýttar í að auka fæðuöryggi viðkvæmra samfélaga í Suður Súdan.

Marel og Rauði krossinn í samstarf um aukið fæðuöryggi

Marel styrkir Rauða krossinn um eina milljón evra eða um 162 milljónir íslenskra króna sem verða nýttar í að auka fæðuöryggi viðkvæmra samfélaga í Suður Súdan.

Suður Súdan er eitt af fátækustu ríkjum heims en þar búa yfir 11 milljónir manna. Um það bil helmingur íbúa landsins býr við alvarlegan matvælaskort og eru því útsettir fyrir vannæringu. Átök hafa geisað í landinu síðastliðin ár og er talið að um 1,6 milljón einstaklinga séu á vergangi innan landsins. „Stríðsátök og ofbeldi undanfarinna ára hafa skilið eftir sig djúp sár í Suður Súdan. Þörfin á aðstoð er mikil en um það bil helmingur íbúa landsins hefur ekki nægan aðgang að mat. Stuðningur Marel og Rauða krossins á Íslandi mun gera okkur kleift að auka stuðning okkar við hundruðir þúsunda fjölskyldna í Suður Súdan“ segir Robert Mardini framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC).

„Framtíðarsýn og tilgangur Marel er skýr. Við viljum stuðla að því að hágæða matvæli séu framleidd á sjálfbæran og hagkvæman hátt“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel. Því miður hafa ekki allir aðgang að mat eða öðrum grundvallar nauðsynjum og við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að auka matvælaöryggi á heimsvísu.

Samstarf okkar við Rauða krossinn er í samræmi við stefnu okkar um samfélagslega ábyrgð sem og áherslu okkar á framlag til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Samstarf okkar við Rauða krossinn styður sérstaklega við tvö af heimsmarkmiðunum; ekkert hungur og alþjóðlega samvinnu um sjálfbæra þróun.

Við erum þakklát fyrir að geta lagt okkar af mörkum og stuðlað að sjálfbærri þróun og betri lífskjörum,“ segir Árni Oddur. „Við vitum að á þeirri vegferð skiptir hver máltíð máli og hvert framlag telur“.

\"South-sudan-seeds-tools-distribution-equatorias-rokon-assistance-09\"Mynd: ICRC/Florian Seriex

Aðstæður í Suður Súdan í dag

Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hefur sinnt umfangsmiklu mannúðarstarfi á því landsvæði sem nú telur Suður Súdan í yfir 40 ár, frá því áður en Suður Súdan varð sjálfstætt ríki og stutt við landsfélag Rauða krossins í Suður Súdan. Undanfarin ár hefur ástandið í Suður Súdan versnað; til viðbótar við átök þá hafa loftslagsbreytingar áhrif í landinu, en mikil flóð á þessu og síðasta ári hafa valdið uppskerubresti og minnkandi landbúnaðarframleiðslu. Stríðsátök hafa gert það að verkum að mjög erfitt hefur reynst að dreifa matvælum til þeirra sem þurfa á að halda.

Á þessu ári hefur svo heimsfaraldurinn bæst við og sett strik í reikninginn til viðbótar við mikla verðbólgu sem hefur skilað sér í mjög háu verðlagi matvæla í landinu. Ástandið í Suður Súdan hefur aldrei verið eins alvarlegt og þörfin á aðstoð því aldrei verið eins brýn og nú.

Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, er þakklát fyrir stuðninginn. „Stuðningur Marel við verkefni Rauða krossins er ómetanlegur. Þetta gerir okkur kleift að styðja hundruðir þúsunda fjölskyldna sem annars myndu búa við mikinn fæðuskort auk alvarlegra afleiðinga vopnaðra átaka. Heimsfaraldur COVID-19 hefur veikt til mikilla muna stöðu viðkvæmra samfélaga sem á aðstoð þurfa að halda þegar athygli heimsins beinist að afleiðingum faraldursins en önnur vandamál eru enn til staðar. Fæðuóöryggi og skortur er alvarlegt mál og við erum þakklát Marel sem er í fararbroddi fyrirtækja sem sýna samfélagslega ábyrgð í verki“ segir Kristín.

\"South-sudan-seeds-tools-distribution-equatorias-rokon-assistance-06\"Mynd: ICRC/Florian Seriex

Framlag sem mun stuðla að sjálfbærni til lengri tíma 

Með fjárstuðningi Marel munu hundruðir þúsunda einstaklinga í Suður Súdan fá aðstoð með það að markmiði að verða sjálfbær um fæðu. Í því felst meðal annars að fjárfesta í fræjum og tækjum til þess að rækta jarðveg en einnig veiðafærum til að auka fjölbreytni í fæðuvali og bólusetningum til að auka heilbrigði búpenings.

Rauði krossinn og Marel: Samstarf um sjálfbæra þróun

Þetta er ekki fyrsta samstarfsverkefni Marel og Rauða krossins. Í desember sl. undirrituðu Marel og Rauði krossinn á Íslandi fjögurra ára samstarfssamning um vatnsverkefnið One WASH í Malaví. One WASH er langtíma verkefni sem stuðlar að bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, hreinlæti og næringu á svæðum þar sem kólerufaraldur er útbreiddur. Umfang samningsins nær yfir bættan viðbúnað, skimun og viðbrögð við kólerufaraldri í Malaví þar sem um 18.6 milljónir manns búa.