Vinkonurnar skiptust á að standa vaktina í búðinni þegar hún var opin í vetur.
Hópur vinkvenna í Hlíðunum í Reykjavík setti upp tombólu reglulega í vetur í þeim tilgangi að safna pening fyrir Rauða krossinn. Tombólan var haldin í Birkihlíð og skiptust vinkonurnar á að manna vaktirnar.
Þær opnuðu í raun litla búð og seldu til dæmis sælgæti og heitt súkkulaði. Þessum duglegu vinkonum hugkvæmdist einnig að ganga í hús til að auka söluna.
Þegar upp var staðið höfðu þær safnað hvorki meira né minna en 15.616 krónum fyrir Rauða krossinn.
Þó nokkrar vinkonur, allar á aldrinum 7–9 ára, hafa komið að þessu skemmtilega og gefandi verkefni í vetur, meðal annars eru það Heiðrún Baldursdóttir Brume, Erna Reka, Hekla Geirsdóttir, Sigrún Rafnsdóttir, Ingileif Teitsdóttir og Máney Baldursdóttir Brume.
Rauði krossinn þakkar vinkonunum kærlega fyrir þetta fyrirmyndar framlag til mannúðar og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.



