Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Poppuðu til styrktar Rauða krossinum

Sara Kolbra Harpa&Emma Tombola

Sara, Kolbrá, Harpa og Emma færðu Rauða krossinum söfnunarféð og tóku við viðurkenningarskjali. Mynd: Davíð Þór

Fjórar uppátækjasamar vinkonur úr Háteigsskóla ákváðu nýverið að safna pening fyrir Rauða krossinn. Þær fengu þá frábæru hugmynd að poppa og bjóða fólki í Hlíðahverfinu í Reykjavík poppið til sölu. Mjög vel var tekið í söfnunina og þegar upp var staðið höfðu þær safnað 32.034 krónum sem þær afhentu stoltar Rauða krossinum.

Þessar skemmtilegu og sjálfstæðu stelpur heita Harpa Sigríður Gunnarsdóttir, Kolbrá V. Grétarsdóttir, Sara Líf Björnsdóttir og Emma Sól Björnsdóttir. Þær eru allar ellefu ára gamlar.

Þær voru mest hissa á því að sumir vildu leggja söfnuninni lið án þess að vilja taka við popppoka.

Vinkonurnar hafa bæði í gegnum skólann sinn og frístundaheimilið Halastjörnuna fengið fræðslu um ýmislegt er varðar stöðuna í heiminum. Góðgerðarmál og hjálparstarf hafa meðal annars verið ofarlega á baugi og því eru þær allar meðvitaðar um að margir eiga erfitt og þurfa aðstoð líkt og Rauði krossinn veitir.

Rauði krossinn þakkar Hörpu, Kolbrá, Söru og Emmu kærlega fyrir að vera með mannúðinni í liði og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.