Almennar fréttir
Rauði krossinn boðar til aðalfundar og óskar eftir framboðum
06. febrúar 2026
Rauði krossinn á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. maí 2026 nk. Á fundinum ber að kjósa stjórnarfólk og er hér með lýst eftir framboðum.
Rauði krossinn á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. maí 2026 nk. Fundurinn verður haldinn í Háteigi, á Grand Hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík. Dagskrá fundar hefst kl. 9 en skráning kl. 8:30 og er dagskrá fundarins samkvæmt 8. mgr. 7. gr. laga Rauða krossins á Íslandi og verður hún auglýst síðar. Fundurinn er opinn öllu félagsfólki en skráning gesta án kjörbréfa fer fram hér og stendur fram til miðnættis 9. apríl nk.
Framboð og tilnefningar til stjórnar
Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem haldinn verður 9. maí 2026 ber að kjósa stjórnarfólk. Hér með er lýst eftir framboðum þeirra sem vilja taka að sér eftirfarandi hlutverk.
Kjörnefnd Rauða krossins á Íslandi hefur nú tekið til starfa skv. 7. gr. laga Rauða krossins á Íslandi frá 4. maí 2024 og verklagsreglum kjörnefndar. Þetta tilkynnist hér með deildum félagsins, félögum og sjálfboðaliðum sem áhuga kunna að hafa.
Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem haldinn verður 9. maí 2026 ber að kjósa stjórnarfólk sem hér segir:
- Kosning formanns til fjögurra ára
- Fjórir stjórnarmenn til fjögurra ára
- Tveir varamenn til tveggja ára
Hér með er lýst eftir framboðum þeirra sem vilja taka að sér ofantalin hlutverk.
Tillögum eða upplýsingum um framboð skal koma á framfæri við kjörnefndarfólk, sjá að neðan eða skriflega til Landsskrifstofu á netfangið frambod(hjá)redcross.is eða í pósti merkt:
Rauði krossinn á Íslandi – kjörnefnd
Efstaleiti 9
103 Reykjavík
Frestur til að skila tillögum og framboðstilkynningum er til miðnættis mánudaginn 9. mars 2026.
Kjörnefndin er þannig skipuð:
Kristján Sturluson, krisstur(hja)gmail.com
Guðný H. Björnsdóttir, gudnyhalldora(hja)gmail.com
Guðrún Vala Elísdóttir, vala(hja)simenntun.is
Varamenn:
Brynjar Þór Vigfússon, brynjar(hja)brynjarv.is
Guðrún Erla Sumarrós Víðisdóttir, sumarrosgudrun(hja)gmail.com
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.