Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi kominn til Venesúela

Karla Johnson Sendifulltrui Rki.Pg

Karla Johnson starfar á Evrópuskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins í Búdapest.

Karla Johnson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er komin til Venesúela þar sem hún mun stýra verkefnum á sviði áætlanagerðar og vöktunar á aðgerðum Rauða kross-hreyfingarinnar á hamfarasvæðum jarðskjálftanna sem urðu að kvöldi 24. júní. Skjálftarnir ollu víðtækum skemmdum og eyðileggingu í norðurhluta landsins. Staðfest dauðsföll skipta hundruðum og þúsundir hafa slasast. Fleiri þúsunda er enn saknað og hundruð fjölskylda hafa misst heimili sín og eru á vergangi.

Karla er menntuð í alþjóðasamskiptum og verkefnastjórnun og starfar nú á Evrópuskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins í Búdapest. Áður starfaði hún hjá Rauða krossinum á Íslandi í verkefnum tengdum flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Karla hefur áður gegnt sendifulltrúastörfum fyrir Rauða krossinn.

Venesúela Skjalfti

Hlúð að slösuðum í neyðarskýli Rauða krossins í Venesúela. Mynd: ICRC

„Í gegnum störf mín hjá Rauða krossinum kynntist ég mörgum frá Venesúela sem flúið höfðu til Íslands og fékk innsýn í menningu þeirra, siði og hversdagslegan veruleika,“ segir Karla. Þá reynslu mun hún nýta í verkefnum sínum í Venesúela sem munu m.a. fela í sér stuðning við starf Rauða krossins í Venesúela sem leiðir aðgerðir hreyfingarinnar í landinu. „Hlutverk mitt verður fyrst og fremst að tryggja að ákvarðanir um aðgerðir Rauða krossins séu teknar á grundvelli áreiðanlegra upplýsinga og raunverulegra þarfa þolenda skjálftanna.“

Meðal helstu áskorana sem blasa við viðbragðsaðilum á vettvangi er mikið og útbreitt tjón á innviðum, m.a. fjarskiptakerfum. Starf Körlu mun því einnig felast í því að bæta bæði öflun og flæði upplýsinga svo aðstoð megi byggja á þörfum hverju sinni. Þannig er reynt að tryggja eftir fremsta megni, við mjög erfiðar og flóknar aðstæður, að bjargir berist þangað sem neyðin er mest og að fjármagn nýtist sem allra best.

Viðgerðir á innviðum

Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins í Venesúela hafa staðið í ströngu allt frá því að skjálftarnir riðu yfir og verið til staðar og aðstoðað fólk við einstaklega flóknar og erfiðar aðstæður. Önnur landsfélög og Alþjóðasambandið hafa sent margþætta aðstoð, jafnt búnað og birgðir, svo sem tjöld og mat, sem og mannskap. Fólk á vegum Rauða krossins vinnur að leit og björgun í rústum húsa, veitir fyrstu hjálp og sálrænan stuðning, og vinnur einnig að því að lagfæra fjarskiptakerfi og aðra grunninnviði og laga og koma upp tímabundnum vatnsveitum.

Heilbrigðiskerfi Venesúela er laskað eftir skjálftana en þau átta sjúkrahús og 34 heilsugæslustöðvar sem Rauði krossinn í Venesúela rekur eru enn starfandi. Til viðbótar hefur félagið komið upp neyðarsjúkrahúsi í borginni La Guaira sem varð mjög illa úti.

Alþjóðasamband hreyfingarinnar hefur ráðstafað tveimur milljónum svissneskra franka (tæpum 312 milljónum íslenskra króna) úr neyðarsjóði sínum til fyrstu aðgerða í landinu. Þá hefur sambandið einnig hafið neyðarsöfnun til að fjármagna frekari aðgerðir sem ljóst er að munu standa yfir næstu mánuði.

Meðal hlutverka Rauða krossins á hamfarasvæðum er að aðstoða fólk sem leitar ástvina sinna. Landsfélagið í Venesúela hefur þegar fengið vel á þriðja þúsund leitarbeiðna.