Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Söfnuðu fyrir börn sem búa við stríð

Tombolustelpur 1Juli2026 2

Karítas Harðardóttir, Hrafnhildur Ívarsdóttir og Bergdís Adda Kjartansdóttir afhenda Rauða krossinum afrakstur tombólunnar. Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór

„Við viljum að peningurinn verði notaður til að hjálpa börnum sem eiga erfitt vegna stríðs,“ segja bestu vinkonurnar Karítas Harðardóttir, Hrafnhildur Ívarsdóttir og Bergdís Adda Kjartansdóttir er þær afhentu Rauða krossinum afrakstur tombólu sem þær héldu nýverið. Þær eru bekkjarsystur úr Fossvogsskóla, allar á ellefta ári og munu fara í 6. bekk í haust.

Hugmyndina að tombólunni áttu þær sjálfar. Er hugmyndin hafði kviknað var fyrsta skrefið að safna dóti til að selja. „Við bönkuðum hjá fólki sem býr í kringum okkur og spurðum hvort það ætti dót sem það vildi gefa okkur,“ útskýrir Karítas.

Viðbrögð nágrannanna voru góð og stelpurnar voru fljótar að fá í hendur fullt af góðum hlutum til að selja. Meðal þess sem nágrannarnir lögðu til voru sokkar, sokkabuxur, bangsar, leikföng, kertastjakar og bækur. Með þetta allt saman komu þær sem fyrir framan við hverfisverslunarkjarnann Grímsbæ og buðu hlutina til sölu. „Það vildu margir kaupa,“ segir Hrafnhildur. Þegar upp var staðið höfðu þær safnað 13.681 krónu.

„Þetta var mjög skemmtilegt og það er gott að geta hjálpað öðrum,“ segir Bergdís Adda.

Í raun var tombóluhaldið það skemmtilegt að þær eru þegar byrjaðar að safna dóti til að selja á þeirri næstu. En fyrst ætla þær að skella sér saman í sumarbúðir á Úlfljótsvatni.

Rauði krossinn þakkar Karítas, Hrafnhildi og Bergdísi Öddu kærlega fyrir að vera í liði með mannúðinni og hvetur fleiri krakka til að feta í þeirra fótspor.